Stakk mann í nauðavörn - Hæstiréttur klofnaði 25. nóvember 2010 16:38 Hæstiréttur.
Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir karlmanni sem var dæmdur fyrir að stinga mann í síðuna með hníf í nóvember 2008. Þá var hann einnig sakfelldur fyrir að hafa haft fíkniefni undir höndum. Maðurinn var upprunalega dæmdur í tíu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til sjö mánaða, fyrir brotið. Hæstiréttur mildaði dóminn niður í þrjá mánuði og er refsingin skilorðsbundin til tveggja ára. Maðurinn sagði fyrir dómi að hann hefði verið að verjast árás fjögurra manna sem réðust á hann og misþyrmdu. Maðurinn sagðist að lokum hafa stungið einn þeirra í síðuna í sjálfsvörn. Hæstiréttur fellst á þetta að hluta til en telur ekki unnt að fallast á að brotið yrði metið refsilaust. Þessu er hinsvegar Ólafur Börkur Þorvaldsson, hæstaréttardómari ekki sammála, og skilaði hann því séráliti. Hann segir í áliti sínu að maðurinn hefði notað hnífinn í algjörri nauðavörn á meðan fjórir menn gengu í skrokk á honum. Því ætti að sýkna hann af brotinu. Ólafur Börkur gerir þó ekki athugasemdir við fíkniefnadóminn sem maðurinn hlaut en hann var með MDMA og Alsælu í fórum sínum.
Mest lesið Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Sjá meira