Ígrip stjórnvalda í atvinnulífið hættuleg þróun 25. nóvember 2010 19:08
Ígrip stjórnvalda í atvinnulífið hér á landi er hættuleg þróun en slík afskipti eru eitt helsta einkenni landa sem fara úr því að vera auðug í að verða fátæk á stuttum tíma. Þetta er mat Jóns Daníelssonar, hagfræðings. Jón gagnrýndi atvinnustefnu stjórnvalda harðlega í erindi á morgunfundi Íslenskra verðbréfa. Hann sagði að hún hefði ekki verið pólitískari en nú síðan frá því hann var barn. „Eitt helsta einkenni af löndum, sem fara úr því að verða tiltölulega auðug í að verða fátæk á einni kynslóð, er nákvæmlega það, að stjórnvöld fara að hafa sífellt meiri afskipti af atvinnulífinu. Taka ákvörðun um það, hvaða fyrirtæki mega vera áfram, hvurslags atvinnustarfsemi eigi að vera í gangi og það sem við erum að sjá á Íslandi í dag eru meiri ígrip stjórnmála í atvinnulífið en hefur verið á einni kynslóð og ég held að þetta sé eitt mesta áhættumerki til framtíðar. Við viljum að atvinnulífið sjálft taki ákvörðun um hvaða uppbygging eigi að verða, það eru leikreglur atvinnulífsins sem þurfa að vera skýrar og það sem við sjáum í dag er hið þveröfuga," segir Jón. Hann gagnrýndi stjórnvöld einnig fyrir stefnuleysi í stórum málum: „Af hverju voru ráðamenn ekki tilbúnir með svar við dómi Hæstaréttar? Af hverju litu þeir út eins og jólasveinar sem snerust í hringi í tvær vikur með svarið. Það sama gildi um viðbrögð við skuldavanda heimilanna. Legið hafi fyrir í tvö ár að vandamálið yrði stærra og stærra. Síðan springur þetta í haust og aftur hafa stjórnvöld ekki áttað sig á því að þetta gæti verið að gerast." Jón segir að ekki sé búið að taka til í stjórnsýslunni eftir hrunið. Embættismannakerfið sé brotið. "Ég held að það sé mikill vilji hjá embættismönnum að viðhalda ákvarðanatökuferlum eins og þau voru fyrir hrunið, sem viðheldur stöðu ákveðinna einstaklinga í kerfinu og ákveðinna stöðugilda"
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira