Innlent

Meintir fjársvikarar yfirheyrðir

Yfirheyrslur héldu áfram um helgina yfir sexmenningunum sem sitja í gæsluvarðhaldi, vegna gruns um að hafa svikið út hátt í 300 milljóna króna endurgreiðslur á virðisaukaskatti.

Jón HB Snorrason sem hefur yfirumsjón með rannsókninni segir fleiri hafa verið yfirheyrða.

Fólkið er grunað um að hafa sett á svið atburðarrás sem hafi verið uppspuni frá rótum.

Til þess að fá endurgreiðslu á virðisaukaskatti hafi þau meðal annars falsað pappíra og gögn.

Einn þeirra sem situr í gæsluvarðhaldi er starfsmaður Ríkisskattstjóra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×