Dómur kveðinn í prófmáli um vexti gengistryggðra lána 20. júlí 2010 12:17
Dómur verður kveðinn upp í prófmáli um vexti gengistryggðra lána á föstudag. Stjórnvöld munu ekki grípa til lagabreytinga fyrr en í fyrsta lagi þegar dómur Hæstaréttar liggur fyrir. Það verður í fyrsta lagi í haust. Málið höfðaði fjármögnunarfyrirtækið Lýsing á hendur skuldara í vanskilum. Ágreiningur er um hversu háar eftirstöðvar lánsins eru, sem skuldarinn þarf að greiða, en það veltur á þeim vöxtum sem reiknaðir verða á lánið. Algjör óvissa hefur ríkt um uppgjörsvexti gengistryggðra lána eftir að Hæstiréttur dæmdi gengistryggingu ólöglega. Miklu munar á eftirstöðvunum eftir því hvaða vextir verða dæmdir á lánið. Ítrustu kröfur Lýsingar hljóða upp á bæði verðtryggingu og vexti samkvæmt gjaldskrá fyrirtækisins, en alls setur fyrirtækið fram fimm varakröfur, þar á meðal að samningsvextir standi. Ef samningsvextirnir standa verða eftirstöðvar lánsins aðeins rúmar 120 þúsund krónur. Ef fallist verður á ítrustu kröfur verða þær meira en tífalt hærri, eða rúmar 1,3 milljónir. Málið var flutt fyrir héraðsdómi Reykjavíkur þann 7. júlí síðastliðinn. Dómsuppsaga í málinu er komin á dagskrá héraðsdóms, en dómur verður kveðinn upp klukkan hálftólf á föstudag. Næsta öruggt má telja að málið fari fyrir Hæstarétt. Í Fréttablaðinu í dag er greint frá því að stjórnvöld bíði úrskurðar í málinu og muni líta til niðurstöðu héraðsdóms varðandi breytingar á lögum í kjölfar dóms Hæstaréttar. Ekki sé unnið að lagabreytingum í ráðuneytunum, en dómurinn gæti breytt því.
Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Dekk sprakk við lendingu vélar Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Fleiri fréttir Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Sjá meira