740 kíló af amfetamíni á ári 12. júlí 2010 06:45 Þessu magni af fljótandi amfetamíni reyndu tvær konur að smygla til landsins í bensíntanki bifreiðar. Ari segir haldlagningu lögreglu afrek. Mynd/Logreglan
Áætluð ársþörf amfetamíns á markaði hér á landi er um 740 kíló og götuverð þess tæpir fjórir milljarðar króna. Þetta segir Ari Matthíasson fyrrum framkvæmdastjóri hjá SÁÁ. Hann vann fyrr á þessu ári meistararitgerð í heilsuhagfræði þar sem hann birti niðurstöður rannsóknar sinnar á þjóðfélagslegri byrði af áfengis- og vímuefnaneyslu. Ari byggir niðurstöðuna á fjölda fíkla háðum sterkum fíkniefnum sem komu inn á Vog 2008 og þeirri þumalputtareglu að fyrir hvern stórneytanda í meðferð séu tveir úti í samfélaginu. „Út frá því er hægt að áætla að ársþörfin sé á ofangreindum nótum,“ segir Ari en með stórneytanda er átt við einstakling sem notar eitt gramm efnis á dag. Ari segir eðli málsins samkvæmt erfitt að áætla með nákvæmni hversu stór fíkniefnamarkaðurinn sé þar sem hann sé utan laga og reglu. „Á hinn bóginn er hægt að athuga hvað gerist þegar mikið magn efna er haldlagt á einu bretti. Það ætti vissulega að hafa mikil áhrif á verðmyndun á markaði. En það virðist ekki gerast. Stór haldlagning hefur lítil áhrif og í skamman tíma. Það þýðir að það berst mikið af efnum inn á markaðinn og hann er skilvirkur. Hann virðist hafa náð tiltekinni stærð og með því fer að skapast grundvöllur fyrir skipulagða glæpastarfsemi.“ Með þessu á Ari við að það krefjist mikillar skipulagningar að fjármagna stórar sendingar. Um sé að ræða staðgreiðsluviðskipti og fjársterkur aðili þarf því að leggja fram fé. Ef smyglið heppnast sé ávinningurinn mikill. Þetta séu forsendur skipulagðrar glæpastarfsemi. Ari segir nýlega haldlagningu lögreglunnar á 20 lítrum af am-fetamínbasa afrek. Úr því hefði verið hægt að framleiða 264 kíló af amfetamíni. „Hefði þetta farið á markað hefði það skapað átök um framboð, verð og svæði. En gjaldeyrishöftin og öflug löggæsla ættu að leiða til þess að innflutningur fíkniefna verði erfiðari en áður.“ - jss
Mest lesið Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Innlent Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Erlent Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Innlent Fleiri fréttir Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Kjörbúðin lokar og ein verslun eftir í bænum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Landskjörstjórn fellst á tillögur um nýtt orðalag Ekki áhyggjuefni að skipið sé á leið til Íslands „Skutlarinn“ ekki ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Bein útsending: Ræða bakslag í jafnréttismálum Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Einar Ólafsson, fyrsti forstjóri Cargolux, látinn Borgin víki sér ítrekað undan ábyrgð Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Ók í gegnum glerhurð í Kaupangi „Getur verið erfitt fyrir okkur sums staðar“ Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Forsetinn á fund páfans „Þetta er bara sanngirnismál“ Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Sigmar Ó. Maríusson er látinn Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Ég er ekki viss um að þau viti hvað við viljum“ „Skilningur opnar ekki höfnina“ Sjá meira