Ríkið býður út lán í stað þess að semja 11. desember 2010 04:00 Vonir standa til að mikill kraftur færist í vegagerð, einkum að næsta ári liðnu. fréttablaðið/stefán
Samningaviðræður ríkisins og lífeyrissjóðanna um fjármögnun sjóðanna á tugmilljarða vegaframkvæmdum runnu út í sandinn á fimmtudag. Of mikið bar í milli þess sem ríkið var tilbúið til að greiða og þess sem sjóðirnir vildu fá. Kristján L. Möller, þingmaður Samfylkingarinnar fer fyrir verkefninu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. „Við vildum semja út frá Íslandi nútímans þar sem vextir eru að lækka og buðum ákveðna breytilega vexti sem grunnvexti og álag ofan á þá. Það var að okkar mati mjög vel boðið en lífeyrissjóðirnir sögðust í gærmorgun [fimmtudagsmorgun] alls ekki vilja breytilega vexti heldur fasta vexti til fjögurra eða fimm ára. Það réði úrslitum,“ segir Kristján. Í ljósi þessa hafa stjórnvöld ákveðið að fjármagna framkvæmdirnar með skuldabréfaútboði. Lánin bera því ríkisábyrgð. Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, segir að í þrjá mánuði hafi legið fyrir að ríkið væri, samhliða viðræðum við sjóðina, að skoða möguleikana á skuldabréfaútboði. „Við vildum semja um fasta vexti enda mikilvægt fyrir lífeyrissjóðina en ríkið vildi breytilega vexti. Við héldum að lending myndi nást en svo slitnaði upp úr. Við vorum rólegir yfir því enda vissum við að hinn kosturinn væri til staðar.“ Aðspurður segir Arnar það koma í ljós hvort lífeyrissjóðirnir taki þátt í skuldabréfaútboðinu en bendir á að þeir séu stór kaupandi slíkra bréfa. Arnar og Kristján eru sammála um mikilvægi þess að niðurstaða fáist. Fram undan séu umfangsmiklar framkvæmdir sem að hluta til komi til framkvæmda á næsta ári en einkum árin 2012, 2013 og 2014. Bæði skapi þær störf og auki á umferðaröryggi á nokkrum fjölförnustu leiðum vegakerfisins. bjorn@frettabladid.is Kristján L. Möller
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent Stúlkan fannst heil á húfi Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Sjá meira