Innlent

Óli Björn: Eins og að pissa í skóinn sinn

Þátttaka lífeyrissjóða í samkeppnisrekstri er eins og að pissa í skóinn sinn að sögn Óla Björns Kárasonar þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Í dag fór fram umræða utan dagskrár um þátttöku lífeyrissjóðanna í atvinnulífinu. Óli Björn var málshefjandi og til andsvara var Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Óli Björn gagnrýndi harðlega kaup Framtakssjóðs lífeyrissjóðanna á eignarhaldsfélagi Landsbankans, Vestia, og fyrirtækjum sem eru í eigu Vestia. Það er augljóst að við söluna gekk bankinn þvert á eigin starfsreglur um gegnsæi og opið ferli við sölu fyrirtækja. Að hans mati er auk þess varhugavert og ámælisvert að lífeyrissjóðirnir eignist fjölda fyrirtækja að fullu.

„Þetta á ekki síst við ef um er að ræða fyrirtæki í samkeppnisrekstri," segir Óli Björn og bendir á að slíkt muni skekkja samkeppnisstöðu og iðgjöld starfsmanna fyrirtækja í samkeppni við fyrirtæki í eigu Framtakssjóðsins nýtt til að efla keppinautana.

Óli Björn benti á að margir lífeyrsisjóðir hafi þurft að skerða lífeyrisréttindi sjóðsfélaga sinna. Nú vilji stjórnendur sömu sjóða ávaxta fé í áhættusömum samkeppnisrekstri.

„Þetta er líkt og að pissa í skóinn, manni hitnar í smá stund en síðan kemur ofkælingin," sagði Óli Björn Kárason.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra tók þá til máls og benti meðal annars á að Framtakssjóðnum hafi verið settar skýrar reglur og að honum sé beinlínis ætlað að taka þátt í endurreisn íslensks atvinnulífs. Auk þess benti fjármálaráðherra á að lífeyrissjóðunum sé ekki ætlað að verða framtíðareigendur umræddra fyrirtækja. Framtakssjóðnum sé ætlað að starfa í tíu ár og hefja sölu á fyrirtækjum strax að þremur árum liðnum eða svo.

Hvað varðar söluna á Vestia út úr Landsbankanum vísaði Steingrímur á bankasýslu ríkisins. Það væri hennar að hafa eftirlit með því hvort bankarnir starfi samkvæmt verklagsreglum. „Mér er lögum samkvæmt bannað að skipta mér af því," sagið Steingrímur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×