Öryrkjar skora á ríkisstjórn og Alþingi 26. október 2010 13:24 Guðmundur Magnússon, formaður ÖBÍ.
Öryrkjabandalag Íslands skorar á ríkisstjórn Íslands að endurskoða sparnað á sviði heilbrigðismála undanfarin tvö ár. Í ályktun sem aðalfundur bandalagsins samþykkti á dögunum segir að sterkar vísbendingar séu um að nokkrar þessara aðgerða muni ekki skila tilætluðum árangri heldur aðeins rýra lífsgæði sjúklinga og öryrkja. Þá skoraði fundurinn einnig á Alþingi að innleiða samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fyrst og gera þær breytingar á lögum sem þarf samkvæmt nefnd um innleiðingu samningsins. „Ríkur skilningur er á, að nú um stund, þurfi að gæta aðhalds í útgjöldum til heilbrigðismála. Krafa okkar er þó sú að samfélagslegur ávinningur sé meiri en kostnaður. Fundurinn leggur áherslu á að þessi endurskoðun hefjist eins fljótt og auðið er og henni verði lokið eigi síðar en 3. janúar 2011," segir í ályktuninni. Þá segir að þær gífurlegu skerðingar sem gengið hafi yfir öryrkja frá bankahruni séu óásættanlegar. „Hækka verður lífeyrisgreiðslur um 20% (kr. 36.000,-) og draga til baka þær skerðingar sem settar voru 1. júlí 2009. Taka þarf tillit til að öryrkjar, fatlað fólk og langveikir, búa oft við mikinn auka kostnað vegna fötlunar, veikinda og ferða þeirra er búa á landsbyggðinni. Skattleysismörk hækki í kr. 160.000,- og sett verði lög er koma í veg fyrir lækkun lífeyrisgreiðslna vegna víxlverkana greiðslna almannatrygginga og lífeyrissjóða. Hætta verður að skattleggja verðbætur eins og um sé að ræða vexti og hækka þak á frítekjumarki fjármagnstekna lífeyrisþega." Þá er áformum um skerðingu á húsaleigubótum harðlega mótmælt þar sem húsnæðiskostnaður fylgir verðlagi á meðan lífeyrir er frystur eða skertur. Að lokum kallar ÖBÍ eftir skilningi stjórnvalda og heildarsýn á kjörum og aðstæðum öryrkja og langveikra.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira