Brýna fyrir börnum að fara ekki upp í bíl með ókunnugum Erla Hlynsdóttir skrifar 22. nóvember 2010 13:04 Mynd úr safni
Forsvarsmenn Kringlumýrar, frístundamiðstöðvar Laugardals og Háaleitis, hafa sent foreldrum bréf þar sem þeir eru hvattir til að brýna fyrir börnum sínum að fara ekki upp í bíla hjá ókunnugum eða eiga nokkur samskipti við þá. „Tvö slík tilvik hafa komið upp í okkar hverfi í haust," segir í bréfinu en seinna atvikið átti sér stað á föstudag. Haraldur Sigurðsson, forstöðumaður frístundamiðstöðvarinnar, segir í samtali við Vísi að með bréfinu sé aðeins verið að árétta varnaðarorð til foreldra. Í umrædd skipti hafi börnin brugðist hárrétt við og labbað í burtu þegar ókunnuga bar að garði. „Starfsfólk er meðvitað um þessi tilvik og er skylt að hringja umsvifalaust á lögregluna verði þau var við grunsamlegar manna- eða bílferðir í nágrenni við frístundaheimili okkar," segir í bréfinu. Þegar blaðamaður hafði samband við lögreglu fengust þær upplýsingar að þar væri skráð atvik frá því á föstudag þar sem bíl var ekið upp á gangstétt við Langholtsveg þar sem barn var á gangi. Barnið varð óttaslegið og fór beinustu leið heim til sín án þess að ökumaður hefði komið að máli við það. Að sögn lögreglumanns var barnið hrætt um að þarna hefði verið „perri" á ferð. Foreldrar hringdu í lögreglu og skýrsla var tekin af barninu. Þar sem engin samskipti áttu sér stað milli ökumanns og barns getur lögreglan ekkert sagt til um hvað manninum gekk til með að leggja uppi á gangstétt. Að sögn Haralds er nokkuð síðan fyrra tilvikið kom upp en á þessum tímapunkti var ákveðið að minna foreldra á að tala við börn sín um hvernig skuli bregðast við þegar ókunnugir gefa sig á tal við þau.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Þrír kærðir fyrir líkamsárásir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira