Pilti gert að fara frá fjölskyldu sinni 6. desember 2010 06:00 Fjölskyldan á Hávarsstöðum f.v. Julio Cesar Gutierrez, Lilja Grétarsdóttir og Julio Daniel Gutierrez í efri röð. Emiliano Elvar Gutierrez og Jórunn Narcisa Gutierrez í neðri röð „
Sonur minn þarf að yfirgefa landið fyrir áramót og við erum leið og hrygg vegna þess. Okkur finnst þetta ósanngjarnt." Þetta segir Julio Cesar Gutierrez, bóndi á Hávarsstöðum í Hvalfjarðarsveit, um þá ákvörðun Útlendingastofnunar að neita nítján ára syni hans um landvistarleyfi. Sonur hans, Julio Daniel, var búsettur í heimalandi sínu Úrúgvæ en hefur dvalið hjá föður sínum og fjölskyldu hér í eitt og hálft ár. Julio Cesar fluttist hingað til lands þegar sonur hans var þriggja ára. Hann settist hér að, kvæntist og á nú fjölskyldu hér. Hann vinnur meðal annars við bústörf heima fyrir, tamningar og fjárrúning svo eitthvað sé nefnt. Sonur hans hefur hjálpað honum við bústörfin þann tíma sem hann hefur dvalið hér. Julio Cesar segir þá feðgana hafa haft stopult samband áður en Daniel flutti til Íslands. Það sé því ómetanlegt fyrir fjölskylduna að fá að kynnast honum og mynda fjölskyldutengsl. Sonur hans hafi haft í hyggju að dvelja hér áfram, fá sér vinnu og jafnvel að fara í skóla. Af því geti nú ekki orðið. Umsóknarferli Daniels hófst í ágúst á síðasta ári. Þá var sótt um dvalarleyfi fyrir barn íslensks ríkisborgara en þeirri umsókn var hafnað því móðir hans sem býr í Úrúgvæ var ein skráð með forræði yfir honum og samkvæmt reglunum verður það foreldri sem sækir um dvalarleyfið fyrir barnið að vera búsett á Íslandi og hafa forræði. Synjunin var kærð til dómsmálaráðuneytisins en ekki var talin heimild í lögum til að víkja frá ákvæðinu um forræði. Ráðuneytið benti á að hægt væri að sækja um leyfi á grundvelli sérstakra tengsla við landið. Nú í nóvember barst Daniel bréf frá Útlendingastofnun þar sem umsókn hans var hafnað og að hann skyldi „yfirgefa landið sem fyrst en eigi síðar en 30 dögum frá móttöku þessarar ákvörðunar". Honum er bent á að hann geti kært ákvörðunina til dómsmálaráðuneytisins. Julio Cesar býst ekki við því að þessi úrskurður verði kærður. Hann segir að það hafi einu sinni verið reynt og er vondaufur um að það beri frekari árangur nú. jss@frettabladid.is
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða ESB ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Sjá meira