Notkun amfetamíns langmest hér á landi 30. október 2010 07:00 Í nýrri rannsókn sem kynnt var á samnorrænni ráðstefnu í Reykjavík í vikulokin kemur fram að í öllum Norðurlandaríkjunum finnst strákum nám síður áhugavert en stelpum.Fréttablaðið/Arnþór
Tólf prósent íslenskra ungmenna, á aldrinum 16 til 19 ára, hafa prófað amfetamín einu sinni eða oftar. Ný rannsókn sem kynnt var á samnorrænu ráðstefnunni Æskan – rödd framtíðarinnar sem lauk í gær sýnir að Ísland sker sig verulega úr hvað þetta varðar. Í öðru sæti, á eftir íslenskum ungmennum, eru Danir með 7,2 prósent og í þriðja sæti eru Færeyingar með 4,9 prósent. Þá hafa 2,6 prósent grænlenskra ungmenna prófað amfetamín, 2,1 prósent norskra, 1,8 prósent sænskra og 1,3 prósent finnskra ungmenna. Eitt af helstu verkefnum Íslands á formennskuári í Norrænu ráðherranefndinni 2009 var framkvæmd samanburðarrannsóknar á högum, líðan og lífsstíl meðal norrænna ungmenna, en rannsóknin var gerð á öllum Norðurlöndunum, þar með talið í sjálfstjórnarríkjunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum. Rannsóknin er afar viðamikil og nær til ótal þátta fleiri en vímuefnanotkunar, svo sem menntunar, notkunar upplýsingatækni, jafnréttismála, tómstunda- og íþróttaiðkunar, heilsufars og fleiri þátta. Rannsóknir og greining héldu utan um gerð rannsóknarinnar sem er sú fyrsta sinnar tegundar. Jón Sigfússon, framkvæmdastjóri Rannsókna og greiningar, segir gögnum hafa verið safnað í hverju landi fyrir sig. Í öllum löndum voru nemendur skóla beðnir að svara spurningalista í kennslustund. „Það hefur tekið okkur um tvö ár að vinna þetta verkefni á öllum Norðurlöndunum og má segja að skýrslan sem nú er kynnt sé bara sýnishorn af heildarniðurstöðum og til að vekja fólk til umhugsunar um þennan aldurshóp sem hvorki telst til barna né ungmenna,“ segir hann og segir að við taki frekari gagnaúrvinnsla hjá mennta- og rannsóknarstofnunum um Norðurlöndin öll. Í vímuefnakafla rannsóknarinnar kemur líka fram að á Íslandi hafa fleiri ungmenni prófað marijúana en hass, 22,6 prósent á móti 16,6 prósentum hass. Á Grænlandi hafa 35,5 prósent ungmenna prófað hass, en 9,6 prósent marijúana og í Danmörku hafa 34,7 prósent prófað hass og 14,2 prósent marijúana. Í ljós kemur að grænlensk og dönsk ungmenni eru líklegust til að hafa drukkið sig full, einu sinni eða oftar, 96,2 þeirra grænlensku og 92,5 prósent þeirra dönsku. Hér var hlutfallið 73,8 prósent. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira