Neita Þingvallagjaldi á ferðaþjónustu eina 30. október 2010 07:00 Þingvallanefnd vill nýta lagaheimildir til að leggja gjald á gesti á Hakinu ofan við Almannagjá. Ferðaþjónustan telur að langan fyrirvara þurfi á slíku og að jafnt verði yfir alla að ganga.fréttablaðið/Pjetur
Ekki er samstaða milli Þingvallanefndar og ferðaþjónustufyrirtækja um gjaldtöku fyrir þjónustu sem þjóðgarðurinn á Þingvöllum veitir á Hakinu ofan við Almannagjá. „Okkur þykir það heldur bratt hjá þjóðgarðsverði að segja að allir hafi tekið þessu vel,“ segir Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF), um þau ummæli Ólafs Arnar Haraldssonar, þjóðgarðsvarðar á Þingvöllum, að allir hafi tekið vel í hugmyndir um gjaldtöku á Hakinu. „Það er alveg ljóst að það eru mjög skiptar skoðanir á því hvernig eigi að fjármagna þessa uppbyggingu,“ segir Erna. „Ef selja á einhverja svona þjónustu þá eru allir í ferðaþjónustunni sammála um að mjög mikilvægt sé að allir þurfi að greiða. Það þarf líka að vanda sig vel. Það þýðir ekki að setja gjöld á ferðaþjónustuna fyrirvaralítið.“ Ekki liggur fyrir formlega af hálfu Þingvallanefndar hverjir eigi að greiða fyrir afnot af þjónustunni á Hakinu. Þjóðgarðsvörður segir málið enn í skoðun en benti á það í Fréttablaðinu í gær að sérstaklega væri horft til atvinnufyrirtækja. Sigurður Ingi Jóhannsson, alþingismaður Framsóknarflokks, sem situr í Þingvallanefnd er afdráttarlausari. Almenningur þurfi ekki að greiða. Annað gildi þegar um sé að ræða skipulagðar ferðir í því augnamiði að skapa tekjur. „Þeir sem eru þarna bara í sínum sunnudagsbíltúr hafa eðlilegan aðgang en þeir sem gera út á þetta fyrir arðsemi þurfa að gera þjónustusamning,“ útskýrir Sigurður Ingi. Erna segir hins vegar ekki ganga upp að benda eingöngu á atvinnureksturinn varðandi gjaldtökuna. „Við myndum ekki sætta okkur við það eins og sums staðar hefur verið raunin að það er verið að rukka eingöngu þá sem eru í rútum. Það er auðveldara en að eltast við hina en það er mjög mikilvægt að þetta sé lágt gjald á alla – ef á annað borð er verið að leggja það á,“ segir framkvæmdastjóri SAF. Á vegum iðnaðarráðuneytisins er nú unnið að frumvarpi um gjald sem renna á í sjóð til að kosta aðstöðu við fjölsótta ferðamannastaði á borð við Gullfoss og Geysi. Ætlunin var að leggja á svokallað gistináttagjald til að fjármagna sjóðinn en það mætti feykilegri andstöðu. Annar möguleiki er að leggja gjald á alla sem koma til og frá landinu en því fyrirkomulagi eru sömuleiðis margir andvígir. gar@frettabladid.is Sigurður Ingi Jóhannsson
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira