Ég hef greinilega tekið brauðmola frá svöngu fólki 30. október 2010 09:00 Egill Einarsson er skotspónn félaga úr rithöfundastétt sem vilja ekki að hann fái að taka þátt í gerð Símaskrárinnar. Kristín Helga Gunnarsdóttir og Hallgrímur Helgason hafa sent kvörtunarbréf til Já.is vegna málsins. „
Á löngum rithöfundarferli hef ég öðlast þykkan skráp. Þar fyrir utan hef ég auðvitað breitt og sterkt bak. En mér er nóg boðið þegar klíka rithöfunda segir að vinir, lesendur og stuðningsmenn mínir séu með mismikið á milli eyrnanna. Að þeir séu heimskir,“ segir Egill „Gillzenegger“ Einarsson rithöfundur. Undanfarna daga hafa birst fréttir af óánægju með aðkomu Egils að gerð Símaskrárinnar. Nýjustu vendingar í málinu eru þær að Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur hefur sent bréf á félaga í rithöfundastétt þar sem hún hvetur til þess að þeir láti til sín taka í málinu. „Undirskriftasöfnun varðandi Egil Einarsson virðist eitthvað að hægja á sér, og margt fólk með lítið á milli eyrnanna er að mæla gegn mótmælunum, það þarf að sækja þetta mál á fleiri vígstöðvum,“ segir í bréfi Kristínar Helgu. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins hefur Hallgrímur Helgason þegar brugðist við ákallinu. Áður höfðu Guðrún Eva Mínervudóttir og Gerður Kristný skrifað undir mótmæli á Facebook gegn aðkomu Egils að Símaskránni. Eins og Fréttablaðið hefur sagt frá bíður Egill þess nú að umsókn hans um inngöngu í Rithöfundasambandið verði tekin fyrir. Ekki verður hjá því komist að tengja þetta tvennt saman; þessi barátta rithöfundanna gegn Agli hlýtur að setja inntökunefndina í undarlega stöðu. Ekki síst þar sem Kristín Helga er stjórnarmaður þar á bæ. „Rithöfundar eru greinilega ekki æstir í að fá mig þarna inn. Þetta fólk er sem betur fer ekki í inntökunefndinni. En þetta mál er allt hið undarlegasta því það lítur út fyrir að það megi bara sumir skrifa á Íslandi en aðrir ekki og það er ískyggilegt að búa í þannig landi,“ segir Egill, sem furðar sig á þessum æfingum með tjáningarfrelsið. Aðspurður segist Egill ekki vita hvað búi að baki þessari óánægju með aðkomu hans að Símaskránni. „Eina skýringin sem ég finn er að þeir hafi ekki sjálfir fengið þennan samning, þetta eftirsótta verkefni að gera Símaskrána. Ég hef greinilega verið að taka brauðmola frá svöngu fólki.“ - hdm g
Mest lesið Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Lífið Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Lífið Hvað veistu um... gönguleiðir? Lífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Lífið „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Leiðir skilja hjá leikhúspari Lífið Lifandi menning í hjarta Hafnarfjarðar Lífið samstarf Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Lífið Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Menning Fleiri fréttir Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Áslaug Arna setur lúxusíbúð á leigu Hvað veistu um… textana hans Bubba? Engin ákvörðun tekin um Eurovision þátttöku Sögufrægt verslunarhús til sölu Hélt allsherjar skilnaðarpartý: „Ég er frjáls“ Lést eftir mislukkaða typpastækkun í Taílandi „Brúðkaup aldarinnar“ hjá Önnu Fríðu og Sverri Stjörnulífið: Undir hárlengingum og bótoxi leynist íslenskur karlmaður Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Sjá meira