Ber af sér sakir um fjárdrátt 30. október 2010 07:30 Höfuðborgin Stokkhólmur.
Fyrrverandi formaður samtakanna Heimilis og skóla í Svíþjóð, Jakob S. Jónsson, hefur verið sakaður um fjárdrátt. Greint var frá málinu í fréttaskýringaþættinum Uppdrag og gransking í sænska ríkissjónvarpinu á fimmtudagskvöld. Í þættinum var fullyrt að Jakob hefði misnotað aðstöðu sína og greitt fyrir ýmsa einkaneyslu með greiðslukorti samtakanna á þeim tíma sem hann gegndi við formennsku í félaginu árið 2007. Á þeim kvittunum sem þáttastjórnrendur hafa undir höndum er meðal annars að finna greiðslur fyrir hreindýrafile, nautasteik, skötusel, lúðu, eðalvín og líkjör. Reikningarnir sýna fram á greiðslur upp á 40 þúsund sænskar krónur, eða um 670 þúsund íslenskar krónur. Samkvæmt sænskum fjölmiðlum fullyrðir fyrrverandi stjórnarmeðlimur Heimilis og skóla í Svíþjóð að stjórnin hafi farið nær vikulega á veitingahús og bari og greitt hafi verið með fjármunum samtakanna. Jakob sagði í samtali við þáttinn að um væri að kenna óreiðu í bókhaldi. „Enginn er fullkominn," sagði hann. „Ég er ekki skipulagður maður. Ég get vel séð um fjárhagsáætlanir en ég er ekki endurskoðandi sem situr og skoðar kvittanir og annað slíkt." Hann sagðist jafnframt í viðtali við sænska fjölmiðla vera afar ósáttur við umfjöllunina. Ekki náðist í Jakob við vinnslu fréttarinnar. - sv
Mest lesið Fjöldi ásakana um brot gegn barnungum stúlkum Erlent „Mjög áhugaverð umræða“ Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Jói Fel málar með puttunum Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Fleiri fréttir „Mjög áhugaverð umræða“ Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Sjá meira