EFTA-dómstóllinn staðfestir ábyrgð vinnuveitenda 10. desember 2010 14:33 Íslenskur smiður slasaðist alvarlega á byggingarsvæði Smáralindar 2001. Hann stefndi vinnuveitanda sínum sem Hæstiréttur taldi ekki bera ábyrgð. EFTA-dómstóllinn snýr þeim dómi við.
Einungis í undantekningartilvikum getur það samræmst tilskipunum ESB um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum að gera starfsmann ábyrgan fyrir öllu eða meginhluta tjóns sem hann verður fyrir vegna vinnuslyss, þegar fyrir liggur að vinnuveitandi hefur ekki farið að reglum um öryggi og heilsu á vinnustað. Þetta er staðfest í dómi EFTA-dómstólsins frá í morgun. Greint er frá dómnum á vef Alþýðusambands Íslands. Í dómsorði segir að „Meðal undantekningartilvika má nefna þegar starfsmaður hefur sjálfur valdið slysi af ásetningi eða stórfelldu gáleysi. Jafnvel í slíkum tilvikum myndi alger höfnun skaðabóta þó eigi síður vera úr hófi íþyngjandi og ekki í samræmi við tilskipanirnar, nema svo sérstaklega hátti til að starfsmaður hafi átt talsvert meiri sök á slysi en vinnuveitandi." Jafnframt staðfestir dómstóllinn að íslenska ríkið geti borið skaðabótaábyrgð gagnvart einstaklingum sem ekki hafa fengið skaðabætur, alveg eða að hluta vegna þess að Ísland hefur innleitt umræddar tilskipanir með ófullnægjandi hætti. Málavextir voru þeir að stefnandi sem er íslenskur smiður var hinn 28. júlí 2001 við vinnu á byggingarsvæði verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar ásamt tveimur samstarfsmönnum sínum. Stefnandi slasaðist þegar hann féll í gegnum gipsplötur af gólfbitum millilofts sem sett hafði verið upp til bráðabirgða og lenti á steingólfi fimm metrum neðar. Hann hlaut af bæði tímabundið og varanlegt líkamstjón og stefndi í kjölfarið vinnuveitanda sínum til greiðslu skaðabóta. Með dómi Hæstaréttar Íslands 20. desember 2005 var skaðabótakröfu stefnanda á hendur vinnuveitanda hans vegna vinnuslyssins endanlega hafnað. Hæstiréttur taldi raunar að unnt hefði verið að tryggja frekar öryggi starfsmanna, með því að leggja þvert ofan á bitana mannheldan við sem þeir hefðu getað gengið eftir. Þó var í dómi Hæstaréttar talið, að ekki hefði verið þörf á að vinnuveitandi stefnanda gæfi honum sérstök fyrirmæli eða leiðbeiningar þar að lútandi. Eins og atvikum málsins var háttað og með vísan til 1. mgr. 26. gr. laga nr. 46/1980, um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum, var talið að skylda til að grípa til varúðarráðstafana hafi verið í verkahring stefnanda sjálfs. Samkvæmt þessu taldi Hæstiréttur ekki unnt að rekja slysið til sakar vinnuveitandans og sýknaði hann af bótakröfu stefnanda. Þessari niðurstöðu hefur EFTA-dómstóllinn nú snúið við og staðfest að íslenska ríkið getur verið skaðabótaskylt vegna hans. Dómurinn hefur ekki þýðingu vegna vinnuslysa sem orðið hafa eftir desember 2009 en þá tóku gildi breyttu skaðabótalögum á þann veg að verði starfsmaður fyrir líkamstjóni í starfi sínu, þá skerðist ekki réttur hans til skaðabóta vegna meðábyrgðar nema hann hafi af stórkostlegu gáleysi eða ásetningi átt þátt í að tjónsatburður varð. Sama á við ef um banaslys er að ræða. Þessi breyting á skaðabótalögum var gerð í kjölfar kröfu ASÍ við frágang kjarasamninga 2008 og var tekin var upp í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar af því tilefni. Í framhaldi þessa dóms EFTA-dómstólsins er rétt fyrir allt launafólk sem hafnað hefur verið um skaðabætur vegna líkamstjóna við vinnuslys á síðustu árum, alveg eða að hluta vegna eigin sakar, og þar sem upplýst hefur verið að reglur um öryggi aðbúnað og hollustuhætti hafa verið brotnar, að láta lögmenn sína taka málin til endurskoðunar.
Mest lesið Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Erlent Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ Innlent Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Helsta klappstýran sögð slegin yfir sálarástandi Trumps Erlent Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Innlent Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Innlent Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Innlent Maður sprautaði illa lyktandi vökva á Ilhan Omar Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Innlent Fleiri fréttir Boðuð í þingsal á versta tíma: „Brynjar, þú ert nú meiri gaurinn!“ Elísabet tekur tímabundið við embætti landlæknis Ákærður fyrir að taka son sinn hálstaki Metaðsókn í starfsendurhæfingu Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Konan enn þungt haldin Leiðir samningaviðræðurnar við bændur Helgi Bjartur einnig ákærður fyrir vændiskaup Hættu að fá boð á vísindaráðsfundi almannavarna: „Menning þöggunar og útilokunar“ „Tel nægja að menn séu að fremja ítrekuð afbrot“ Ólga meðal eldfjallafræðinga og bruni á Húsavík Fjármál barnanna geti haft áhrif á eftirlaun foreldranna Áfengi efnafræðilega skylt lampaolíu, terpentínu og bensíni Karlarnir leiða að ósk kvennanna Þessi skipa lista Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ Nær altjón í iðnaðarhúsnæði eftir bruna á Húsavík Guðrún svarar fyrir gömul ummæli um aðildarviðræður að ESB Afneitun helfararinnar verði gerð refsiverð og fræðsla aukin Rúmlega tvöhundruð skjálftar við Lambafell í Þrengslum Höfðu afskipti af „trylltum“ manni og ofurölvi útlendingi Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Sjá meira