Innlent

Féll átta metra en slapp ótrúlega vel

MYND/Vilhelm

Karlmaður um tvítugt slapp ótrúlega vel, að sögn lögreglu, þegar hann féll í gærkvöldi átta metra niður af svölum húss við Vesturgötu í Reykjavík og hafnaði á gangstéttinni.

Hann var með meðvitund þegar lögregla og sjúkraflutningamenn komu á vettvang, en var meiddur á fæti og kvartaði undan eymslum í baki. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og rannsókna. Maðurinn var að klifra á milli svala utan á húsinu, til að komast heim til sín, þegar honum skrikaði fótur á hálu þakinu á milli svalanna og féll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×