700 Íslendingar gætu misst námsstyrki 18. nóvember 2010 06:00 Verði af fyrirhuguðum breytingum á SU-styrkjum mun það koma illa við marga íslenska námsmenn í Danmörku. Fréttablaðið/Þorgils
Áætlanir stjórnarflokkanna í Danmörku um að afnema námsmannastyrki, svokallaða SU-styrki, til erlendra ríkisborgara gætu haft veruleg áhrif á afkomu margra Íslendinga sem sækja þar menntun. Að öllu jöfnu eru SU-styrkir, sem nema um 5.300 dönskum krónum á mánuði fyrir skatt, eða um 110 þúsundum íslenskra króna, ekki ætlaðir erlendum ríkisborgurum, en undanþágur eru gerðar, til dæmis ef viðkomandi hefur búið í Danmörku í fimm ár eða unnið í landinu um að minnsta kosti tveggja ára skeið. Samkvæmt tölum Lánasjóðs íslenskra námsmanna þáðu 722 íslenskir ríkisborgarar SU-styrk fyrstu níu mánuði ársins. Það er talsverð fjölgun frá fyrra ári þar sem 584 Íslendingar hlutu styrk. Í fréttum danskra miðla segir að um 6.500 útlendingar þiggi SU-styrk og er kostnaður ríkisins vegna þess um 300 milljónir danskra króna, eða rúmir sex milljarðar íslenskra króna. Þó að stjórnarflokkarnir séu sammála um að fara þetta skref, munu andstöðuflokkarnir sennilega ekki styðja væntanlegt frumvarp, því að það taki ekki á málefnum SU í heild sinni. Er því líklegt að frumvarpið muni taka nokkrum breytingum áður en yfir lýkur. Hjördís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra námsmanna erlendis, (SÍNE) segist uggandi yfir þessum fréttum og ef af verði muni það jafnvel verða til þess að margir Íslendingar hrökklist úr námi í Danmörku. „Það eru eflaust margir sem hafa farið út til að vinna, gagngert til að eiga svo rétt á að fá þennan styrk.“ Hjördís segir þetta vera annað dæmi um það hvernig verið sé að kreppa að íslenskum námsmönnum í Danmörku, en hún hafi nýlega frétt af einum sem var rukkaður um mjög há skólagjöld, í nám þar sem Íslendingar höfðu hingað til verið undanþegnir skólagjöldum. „Þetta er greinilega einhver opinber stefna því að ég hafði samband við þann skóla og þau sögðu mér að þetta væri samkvæmt beinum fyrirmælum frá menntamálaráðuneytinu danska. Í kjölfarið bentum við upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar á málið og þar á að kanna það og fara lengra með málið.“ Hjördís segir að SÍNE muni fylgjast með framvindunni. „Við munum fylgjast mjög vel með þessu máli. Allt norrænt samstarf og góðvilji í þessum efnum gæti verið í hættu ef það verður skorið á þetta allt í einu.“thorgils@frettabladid.is
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Fleiri fréttir Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Sjá meira