Mígreni tengt hjartasjúkdómum 10. nóvember 2010 11:30 Lárus ver doktorsritgerð sína við Læknadeild Háskóla Íslands á föstudaginn. Fréttablaðið/GVA
Lyfja- og faraldsfræðingurinn Lárus Steinþór Guðmundsson ver doktorsritgerð sína „Tengsl mígrenis, blóðþrýstings og bólgusvars við dauða vegna hjarta- og æðasjúkdóma" við Læknadeild Háskóla Íslands á föstudag. Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að fólk á miðjum aldri sem þjáist af mígreni höfuðverkjum ásamt áru deyr frekar vegna hjarta- og æðasjúkdóma en þeir sem ekki þjást af slíkum höfuðverk. Einstaklingar með mígreni án áru eru hins vegar ekki í aukinni hættu. Ára lýsir sér sem sjóntruflanir, svimi eða dofi fyrir mígrenikast. Niðurstöðurnar byggja á gögnum úr hóprannsókn Hjartaverndar sem hófst árið 1967. Í henni var 18.725 þátttakendum af báðum kynjum fylgt eftir að meðaltali í 26 ár eftir að þeir höfðu svarað spurningum um ýmsa þætti tengda hjarta- og æðasjúkdómum. Í rannsókninni voru einnig gerðar ýmsar klínískar mælingar eins og blóðþrýstings- og blóðfitumælingar. Með úrvinnsluaðferðum í faraldsfræði var hægt að meta dánarlíkur tengdar mígreni með og án áru og leiðrétta jafnframt fyrir áhrifum annarra áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma. Við það kom í ljós að mígreni með áru er sjálfstæður áhættuþáttur. Hann er hins vegar mun vægari en þekktir áhættuþættir eins og reykingar, sykursýki og háþrýstingur. Ekki fannst samband milli mígrenis og háþrýstings og bólgusvar var ekki hærra meðal einstaklinga með mígreni samanborið við aðra. En hver er skýringin á þessum tengslum mígrenis með áru við hjarta- og æðasjúkdóma? „Það eru ýmsar kenningar til og sumir hallast að því að skýringuna sé að finna í æðaveggjunum. Fyrri rannsóknir benda til þess að samband sé á milli mígrenis og heilablóðfalls en hingað til hefur það verið meira á reiki hvort það hafi áhrif á hjartað. Okkar niðurstöður benda til þess að það sé samband á milli mígrenis með áru og bæði heilablóðfalls og kransæðastíflu. Mígrenið virðist því ekki bara tengt við höfuðið heldur er allt æðakerfið undir," segir Lárus. Hann segir hefðbundnum áhættuþáttum eins og reykingum, sykursýki og háþrýstingi hægt að stýra og að ýmislegt bendi til þess að það sama eigi við um mígreni. „Það þyrfti hins vegar að rannsaka það frekar hvort ákveðin íhlutun dragi úr líkum á því að fólk sem er með mígreni með áru deyi úr hjarta- og æðasjúkdómum. Það sem við þó vitum er að það er hægt að hafa áhrif á tíðni mígrenikasta með bæði lyfjagjöf og lifnaðarháttum." Doktorsvörn Lárusar fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í Aðalbyggingu. Hún er öllum opin og hefst klukkan 10. vera@frettabladid.is
Mest lesið Bylgja Dís er látin Innlent Gestur Guðmundsson er látinn Innlent Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Innlent Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Innlent Fjórar ungar vinkonur fórust í eldsvoða í Noregi Erlent Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Erlent Breski sundkappinn kominn í land og lofsyngur Íslendinga Innlent Fjórir af hverjum fimm vilja setja árlegt hámark á hælisleitendur Innlent Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Innlent „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Innlent Fleiri fréttir „Sultaról rithöfunda enn hert“ í fjárlögum Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Vill hækka skráningargjöldin í 100 þúsund krónur Skjálfti upp á 3,3 í Vatnafjöllum Afnemur æviskipanir varasaksóknara eftir mál Helga Magnúsar Gul úrkomuviðvörun á Austfjörðum og á Suðausturlandi Gestur Guðmundsson er látinn Breski sundkappinn kominn í land og lofsyngur Íslendinga Háskólinn hafi ekki breytt stefnu sinni um inntöku alþjóðlegra nema Hallar á karla í fjárlagafrumvarpi Féll af baki íslensks hests og fær engar skaðabætur Óttast verðhækkanir sem bitni á konum og barnafjölskyldum Ósáttur við skattana og hefði viljað loka fjárlagagatinu Fjórir af hverjum fimm vilja setja árlegt hámark á hælisleitendur Ólík sýn á nýja fjárlagafrumvarpið Bylgja Dís er látin Fundu villuráfandi ferðamenn nærri skálanum í Landmannalaugum „Allir vilja alltaf meira“ Reikna með fimmtán milljarða halla á næsta ári Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Bjargað af efri hæð eftir að eldur kom upp á jarðhæð í íbúðarhúsi Leitað að manni með öxi „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Sjá meira