Brennuvargar í Vestmannaeyjum fyrir dóm SB skrifar 10. nóvember 2010 11:29 Eldur. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Ríkissaksóknari höfðar í dag mál á hendur þremur ungmennum í Vestmannaeyjum. Þeim er gefið að sök að hafa kveikt í hópbifreið svo mikil hætta hlaust af. Málið verður þingfest fyrir Héraðsdómi Suðurlands í dag. Í ákæru á hendur ungu mönnunum þremur, sem fæddir eru á árunum 1989 - 1992, segir að bifreiðin hafi eyðlagst í brunanum. Jafnframt hafi klæðning og gluggarúður skemmst í nálægu húsu á Tangagötu. Hætta hafi verið á því að eldurinn gæti breiðst út en í húsinu á Tangagötu hafi verið geymdir flugeldar og önnur tæki í eigu björgunarsveitar bæjarins. Íkveikjan virðist hafa verið vel skipulögð. Brennuvargarnir fóru margsinnis á vettvang til að kanna aðstæður. Stálu eldfimum vökva úr geymsluhúsnæðum í bænum og gerðu tvær atlögur að bílnum. Í fyrra skiptið dó eldurinn út en í seinna skiptið hentu þeir bensínbrúsa inn í bílinn sem skíðlogaði. Þá óku þremenningarnir um götur bæjarins og athuguðu eftirlitsferðir lögreglunnar þangað til þeir töldu óhætt að kveikja í. Einna þeirra stóð svo vörð meðan hinir tveir tendruðu eldinn. Ferðaþjónusta Vestmannaeyja, sem átti bílinn, gerir um þriggja milljón króna skaðabótakröfu á hendur drengjunum. Málið verður þingfest í dag.
Mest lesið Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Innlent Bera kennsl á mann fimmtíu árum eftir að hann lét sig hverfa Erlent „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Innlent Þrjár ungar konur fórust í eldsvoða í Noregi Erlent Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Innlent Sveppamorðinginn í lífstíðarfangelsi í Ástralíu Erlent Treystir á afdráttarlaus viðbrögð bandamanna við árás helgarinnar Erlent Sex látnir í skotárás Palestínumanna í Jerúsalem Erlent Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Innlent Boðað til mótmæla vegna vopnasýningar í Lundúnum Erlent Fleiri fréttir Bylgja Dís er látin Fundu villuráfandi ferðamenn nærri skálanum í Landmannalaugum „Allir vilja alltaf meira“ Reikna með fimmtán milljarða halla á næsta ári Daður við drengi sem verður kynferðislegt og endar með hótun Fjárlög 2026: Ríkisstjórnin sýnir á spilin fyrir næsta ár Bjargað af efri hæð eftir að eldur kom upp á jarðhæð í íbúðarhúsi Leitað að manni með öxi „Mjög miður að við séum komin á þennan stað“ Gleði og samvera í 60 plús leikfimi á Selfossi Syrgja fallið kornabarn: „Það er ekkert plan, engin lausn“ Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt Syrgja fallið kornabarn og fyrsti þúsaldardýrlingurinn Einn fluttur á Landspítalann frá Fjallabaki Kröftug mótmæli brjóti ekki gegn málfrelsi Hringveginum lokað vegna umferðarslyss Þyrlan kölluð út á mesta forgangi Jákvæð gagnvart nýrri atvinnustefnu Frábær og vel heppnuð Ljósanótt Möguleg slit á fríverslunarsamningi við Ísrael tekin fyrir Skoða að rifta fríverslunarsamningi við Ísrael Labubu bangsar ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla Fangageymslur fullar eftir erilsama nótt Aðgerðir vegna Gasa, málfrelsi á Íslandi og ný atvinnustefna Ákærðir vegna fölsuðu taflanna tuttugu þúsund „Vona bara að hún grípi til raunverulegra aðgerða sem bíta“ Korn ræktað á um fjögur þúsund hekturum Veltir fyrir sér hvort íslensk íþróttafélög verði af milljörðum Handtekinn undir áhrifum með tvö börn í bílnum Fjölmenn mótmæli og skortur á íslenskukunnáttu þrátt fyrir doktorsnám Sjá meira