Borgin segir upp leikskólastjórum Þorbjörn Þórðarson skrifar 10. nóvember 2010 12:14 Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar.
Smærri leikskólar í Reykjavík verða sameinaðir og leikskólastjórum verður sagt upp, samkvæmt tillögum um hagræðingu á leikskólastiginu sem liggja fyrir. Oddný Sturludóttir, formaður menntaráðs Reykjavíkurborgar, fundaði með leikskólastjórum í Reykjavík í gær þar sem hún kynnti hugmyndir um hagræðingu á leikskólastiginu. Til stendur að sameina yfirstjórn leikskóla í Reykjavík, en leikskólar í borginni eru alls 78 talsins og því er ljóst að tækifæri til hagræðingar og sameiningar eru til staðar. Leikskólastjórar sem fréttastofa ræddi við segja að þarna hafi verið kynntar tillögur um sameiningu leikskóla í Reykjavík. Meðal þess sem verið er að skoða er sameining minni leikskóla, þ.e. tveggja og þriggja deilda leikskóla. Leikskólastjórum- og aðstoðarleikskólastjórum í þeim leikskólum sem verða sameinaðir verði sagt upp og stöður yfir sameinuðum leikskólum auglýstar. Þar með verði öllum leikskólastjórum sem misstu vinnuna gefinn kostur á að sækja um þær, en hin opinbera stefna á leikskólastiginu virðist frekari sameining í hagræðingarskyni. Oddný Sturludóttir segir að unnið hafi verið eftir þessum tillögum í nokkurn tíma. T.d. hafi sex leikskólar verið sameinaðir í þrjá á þessu ári og þessari vinnu verði haldið áfram. Nýr starfshópur sem Oddný fer fyrir fer nú úr einu hverfi í annað og greinir tækifæri til sameiningar og hagræðingar á leikskólastiginu og er stefnt að því að ljúka þessari vinnu fyrir 1. febrúar næstkomandi. Oddný segir að ekki lægi fyrir hvaða leikskólar verði sameinaðir á næstunni, enda sé þetta á undirbúningsstigi. Leikskólastjórar sem fréttastofa ræddi við í morgun sögðu að margir væru uggandi yfir þessum hagræðingartillögum af ótta við að missa starf sitt. Mikil eftirspurn eftir leikskólaplássum, en alls vantar í dag 450 leikskólapláss fyrir reykvísk börn.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira