Innlent

Aldan hreinsar höfn

Eldgosið hófst um nóttina og nokkrum klukkutímum síðar ruddist flóð niður Markarfljót. Til vinstri á myndinni sést Landeyjahöfn sem virðist lítil í samanburði við aurbóluna sem myndast á haffletinum þegar milljónir rúmmetra af föstum gosefnum og aur æða í sjó fram. mynd/jarðvísindastofnun
Eldgosið hófst um nóttina og nokkrum klukkutímum síðar ruddist flóð niður Markarfljót. Til vinstri á myndinni sést Landeyjahöfn sem virðist lítil í samanburði við aurbóluna sem myndast á haffletinum þegar milljónir rúmmetra af föstum gosefnum og aur æða í sjó fram. mynd/jarðvísindastofnun
Talið er að 700 til 800 þúsund rúmmetrar af gosefnum hafi borist til sjávar með flóðum í Markarfljóti við upphaf eldhræringanna í Eyjafjallajökli. Tvöfalt það magn hafði borist til sjávar samkvæmt mælingum Siglingastofnunar í byrjun ágúst.

Framburðurinn hefur valdið erfiðleikum í Landeyjahöfn en um tímabundinn vanda er að ræða. Jafnframt ruddust fram fimm til sex milljónir rúmmetra af aur í hamfaraflóðinu; aurinn barst á haf út og hefur engin áhrif á hafnarmannvirkin.

Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnasviðs Siglingamálastofnunar, segir að þrátt fyrir að framburður gosefna hafi valdið tímabundnum erfiðleikum við höfnina sé ástæðulaust að hafa af því sérstakar áhyggjur. „Við reiknum með að þetta vandamál verði úr sögunni eftir veturinn. Ef það kemur hressileg og ríkjandi suðvestanátt í töluverðan tíma, þá hreinsast þetta allt austur úr.“

Sigurður telur að lítið magn verði eftir við höfnina en auðvitað verði að hafa hugfast að tíu ára framburður Markarfljóts hafi gengið í sjó fram á nokkrum mánuðum. „Þetta mun hafa áhrif á höfnina þangað til rétt veðurskilyrði myndast.“

Sigurður viðurkennir að starfsmenn Siglingastofnunar séu órólegir vegna þeirrar stöðu sem uppi er. Hins vegar verði að líta til þess að um eðlilegt ástand er að ræða. „Það er náttúran sem stjórnar þessu, ekki við.“ svavar@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×