Rannsóknarstarfið hafið hjá kirkjunni 16. nóvember 2010 04:00 Róbert R. Spanó Niðurstöður nefndarinnar verða líklega ekki gerðar opinberar fyrr en í júní á næsta ári, segir formaður.
Kirkjuþing samþykkti samhljóða tilnefningar kirkjuráðs til rannsóknarnefndar á laugardag sem á að rannsaka viðbrögð og starfshætti Þjóðkirkjunnar í kjölfar ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi vegna kynferðisbrota. Rannsóknarnefndin er skipuð þeim Róbert R. Spanó, prófessor og forseta lagadeildar Háskóla Íslands (HÍ), Berglindi Guðmundsdóttur, sálfræðingi og klínískum dósent við sálfræðideild HÍ, og Þorgeiri Inga Njálssyni, dómstjóra Héraðsdóms Reykjaness og aðjúnkts við lagadeild Háskólans í Reykjavík. Kostnaðarumsögn fjármálasviðs Biskupsstofu sem lögð var fram á kirkjuþingi tilgreinir að kostnaður við starf nefndarinnar muni greiðast úr kirkjumálasjóði og er áætlaður á bilinu 10 til 12 milljónir króna, miðað við umfang verkefnisins. Róbert R. Spanó, formaður nefndarinnar, segir kostnað fyrst og fremst fólginn í vinnuframlagi nefndarmanna og eftir atvikum annarra sem munu aðstoða nefndina við störf hennar. Samkvæmt tillögunni á nefndin að skila af sér rökstuddum niðurstöðum eigi síðar en 1. júní næsta árs og jafnframt að kynna þær opinberlega. „Vegna umfangs og eðlis verkefnisins tel ég líklegt að nefndin muni þurfa að nýta þann tíma sem hún hefur til fulls,“ segir Róbert. „Niðurstöður nefndarinnar verða aðeins kunngerðar opinberlega þegar starfinu er lokið.“ Nefndin á að fá óheftan aðgang að öllum gögnum kirkjunnar sem kunna að varpa ljósi á hvort um mistök, vanrækslu eða vísvitandi þöggun eða tilraun til þöggunar hafi verið að ræða af hálfu vígðra þjóna og starfsmanna kirkjunnar, eftir að ásakanir um kynferðisbrot voru komnar fram og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Róbert væntir þess að það gangi eftir og segir hópinn munu hittast á fundi í vikunni. „Gera má ráð fyrir að verkefnið verði þríþætt. Gagnaöflun í upphafi, síðan viðtöl við þá sem í hlut eiga og starfsmenn kirkjunnar, og loks skýrslugerð og frágangur,“ segir hann. Rannsóknin verður bundin við viðbrögð kirkjunnar við meintum kynferðisbrotum Ólafs Skúlasonar biskups. „Nefndarmenn hafa þegar rætt saman um verkefnið en fyrsti formlegi vinnufundurinn fer fram í þessari viku,“ segir Róbert. sunna@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Sjá meira