Innlent

Hlátrasköll á Alþingi: „Hvar hefur þú verið?“

Erla Hlynsdóttir skrifar
Össur Skarphéðinsson er gjarnan snöggur til svars og lét ljós sitt skína á Alþingi í morgun
Össur Skarphéðinsson er gjarnan snöggur til svars og lét ljós sitt skína á Alþingi í morgun Mynd: Anton Brink

Líf og fjör var á Alþingi í morgun þar sem umræður um störf þingsins voru á dagskrá. Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins,

gerði því skóna að stokkað hefði verið upp í ríkisstjórninni til þess eins að þingmeirihluti fengist fyrir fjárlögum, og vísaði í því sambandi til orða Álfheiðar Ingadóttur, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, á tröppum Bessastaða þegar ný ríkisstjórn var kynnt. Sem kunnugt er var Álfheiði skipt út fyrir Ögmund Jónasson sem kenndur hefur verið við „órólegu deildina" í vinstri grænum.

„Hún sagði, með leyfi forseta, að með ráðherraskiptunum væri verið að tryggja meirhluta fyrir fjárlögum. Nú held ég að flestir hafi staðið í þeirri meiningu að hér væri meirihlutastjórn í landinu," sagði Guðlaugur. Þá heyrðist úr þingsalnum að einhver hrópaði: „Hvar hefur þú verið?" og í kjölfarið glumdu hlátrasköll þannig að þingmaður þurfti að gera stutt hlé á máli sínu.

Af orðum Guðlaugs því næst mátti ráða að þarna hafi kallað fram Össur Skarphéðinssn utanríkisráðherra og „yfirforsætisráðherra" eins og Guðlaugur nefndi hann. Guðlaugur vildi meina að með framíkalli sínu hafi utanríkisráðherra gefið í skyn að hér hafi einmitt ekki verið meirihlutastjórn.

Össur kom skömmu síðar sjálfur í pontu og uppskar enn meiri hlátur þegar hann sagði snögglega: „Ég hef fulla trú á að Ögmundur Jónasson, hæstvirtur ráðherra, hann styrki ríkisstjórnina og jafnvel læt mér koma til hugar að ríkisstjórnin hugsanlega hafi þá meirihluta fyrir fjárlögunum."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×