Ætla að draga úr mengun um tuttugu prósent á áratug 12. nóvember 2010 05:45 Svandís Svavarsdóttir. Mynd/Valli
Fréttaskýring: Ríkisstjórnin hefur samþykkt aðgerðaáætlun til næstu tíu ára sem draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda. Áætlunin nær til allra samgangna á Íslandi og landgræðslu. Flýta á fyrir metanvæðingu bílaflotans. Vonir standa til að nota lífefnaeldsneyti á fiskiskipaflotann. Ríkisstjórnin hefur stigið fyrstu skrefin í aðgerðaáætlun umhverfisráðuneytis í loftslagsmálum sem draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda um allt að 38 prósent á næstu tíu árum að teknu tilliti til bindingar kolefnis í andrúmsloftinu með landgræðslu, skógrækt og endurheimt votlendis. Svandís Svavarsdóttur umhverfisráðherra segir í samtali við Fréttablaðið áætlunina, sem samþykkt var í ríkisstjórn á föstudag, sýna vilja stjórnvalda til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í verki. Hvorki sé um innantóm loforð né yfirlýsingar að ræða, aðgerðaáætlunin sé til þess gerð að fara eigi eftir henni. Svandís bendir jafnframt á að áætlunin sé víðtæk, hún nái jafnt til samgangna, bæði bíla, flugvéla og fiskiskipaflotans, auk bindingar sem fæst með skógrækt og landgræðslu. Auk aðgerðaáætlunarinnar samþykkti ríkisstjórnin frumvarp um breytingu á vörugjaldi á bílum sem hvetja á fólk til að kaupa sparneytnari bíla en áður. Þessu til viðbótar samþykkti ríkisstjórnin á mánudag að endurgreiða allt að hundrað þúsund krónur af vörugjaldi bíla sem ganga fyrir bensíni eða dísilolíu en er breytt til að ganga fyrir metani. Tillögunni er ætlað að flýta fyrir þeirri þróun að metan verði notað í daglegum samgöngum hér á landi á næstu árum.Mikilvægt að breyta um gírHugi Ólafsson Aðgerðaáætlun stjórnvalda um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda á næstu tíu árum er ekki byggð á sandi, að sögn skrifstofustjóra í umhverfisráðuneytinu. Fréttablaðið/AntonFulltrúar frá fjármála- og utanríkisráðuneytunum kynntu aðgerðaáætlunina í Tjarnarbíói í gær og var þar ítarlega farið yfir þá þætti sem áætlunin á að ná til. Þar kom fram að mörg ríki vinni að aðgerðum í loftslagsmálum, sem muni taka við af Kyoto-bókuninni frá 1997 eftir tvö ár.Svandís var fjarstödd af persónulegum ástæðum. Í hennar stað las Hafdís Gísladóttir, aðstoðarkona hennar, ávarp umhverfisráðherra. Í ávarpinu var vitnað til þróunarskýrslu Sameinuðu þjóðanna þar sem fram kemur að efnahagskreppur og bankaþrot séu ekki helsta ógn við velsæld jarðarbúa heldur loftslagsbreytingar. Á sumum stöðum muni þurrkar valda umfangsmiklum breytingum á búsetu manna. Flóð af sömu völdum hafi sömu áhrif. Því sé fyrirhyggja nauðsynleg í samstarfi ríkis, sveitarfélaga, fyrirtækja og almennings.Á meðal aðgerðanna eru vistvænni samgöngur en áður, lagning hjólreiðastíga og annað í þeim dúr.„Við erum ekki að byggja á sandi, heldur vinnum að því að minnka losun verulega fram á miðja öldina," sagði Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneytinu, í erindi sínu. Hann benti á að drög að áætluninni hefðu legið lengi fyrir og voru lögð fram fyrir Kaupmannahafnarfundinn í desember í fyrra þar sem unnið var að samkomulagi um framhaldsaðgerðir við Kyoto-bókunina.„Markmið okkar er að Ísland verði á meðal metnaðarfyllstu ríkja heims í viðleitni sinni við að draga úr losun gróðurhúsaloftegunda," sagði hann.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira