Innlent

Tæpir þrír sólarhringar liðnir - morðinginn enn ófundinn

Morðinginn er enn þá ófundinn.
Morðinginn er enn þá ófundinn.

Enginn hefur verið handtekinn eftir að manni á þrítugsaldri var sleppt úr haldi lögreglunnar í dag vegna rannsóknar á manndrápi í Hafnarfirði síðustu helgi.

Samkvæmt Friðriki Smára Björgvinssyni, yfirlögregluþjóni lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, vinna fjörtíu lögreglumenn að rannsókn málsins.

Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir og þeirri vinnu er ekki lokið. Tæknirannsókn á vettvangi er langt komin og önnur gagnaöflun í fullum gangi. Fjöldi ábendinga hafa borist frá almenningi og verið er að vinna úr þeim eftir því sem tilefni er til.

Maðurinn sem var handtekinn í dag var æskuvinur unnustu hins myrta. Lögreglan sá hinsvegar ekki ástæðu til þess að fara fram á gæsluvarðhald yfir honum og var honum því sleppt síðdegis.

Maðurinn var nafn- og myndbirtur í nokkrum ljósvakamiðlum en lögmaður hans, Guðrún Sesselja Arnardóttir, gagnrýndi þá fjölmiðla harðlega fyrir forkastanleg vinnubrögð. Þá sagði hún í viðtali á Stöð 2 í kvöld að fleiri hefðu verið handteknir vegna málsins og yfirheyrðir.

Hannes Þór fannst látinn á heimili sínu á sunnudaginn. Hann hafði verið stunginn margsinnis með hníf fyrr um nóttina. Það var unnusta mannsins sem kom að honum. Lögreglan hefur leitað morðingjans án árangurs í tæpa þrjá sólarhringa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×