Innlent

Bæjarstjórn: Vegtollur hrein og klár svik

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar mótmælir alfarið öllum hugmyndum um vegtoll á Reykjanesbraut en í skoðun er að setja vegtolla á stofnbrautir út frá Reykjavíkurborg. „Í aðdraganda framkvæmda við tvöföldun Reykjanesbrautar var margoft rætt um mögulega vegatolla en slíkum hugmyndum var ávallt mótmælt af íbúum Suðurnesja," benda bæjarfulltrúarnir á en þeir eru einróma í þessari skoðunn sinni.

„Þær hugmyndir höfðu svo verið lagðar til hliðar þegar framkvæmdir við tvöföldun hófust og yfirlýsingar þáverandi ráðamanna voru á þá leið að ekki yrðu innheimt vegagjöld vegna tvöföldunar Reykjanesbrautar," segir ennfremur í bókuninni. „Nýframkomnar hugmyndir um vegagjald á Reykjanesbraut væru því hrein og klár svik við íbúa Suðurnesja og um leið afar ósanngjarn skattur á íbúa og atvinnulíf á Suðurnesjum."

Bæjarstjórnin segir að nauðsynleg uppbygging menntastofnana á Suðurnesjum verði skorður settar og minnkar aðsókn af höfuðborgarsvæðinu vegna skattlagningar á ferðakostnað nemenda auk þess sem dregið sé úr möguleikum nemenda frá Suðurnesjum að sækja nám til höfuðborgarsvæðis vegna aukins kostnaðar.

„Niðurskurður í heilbrigðisstarfsemi er ávísun á fleiri ferðir sjúklinga og aðstandenda þeirra til höfuðborgarsvæðisins og eru vegagjöld skattlagning á þann aukakostnað einstaklinga og fjölskyldna á Suðurnesjum," segir einnig.

Þá vill bæjarstjórnin minna á að á sínum tíma hafi verið gjaldtaka á Reykjanesbraut og að íbúar á Suðurnesjum hafi lagt sitt af mörkum vegna kostnaðar við uppbyggingu þessara mestu umferðaræðar utan höfuðborgarinnar.

„Bílaeigendur greiða bensín- og olíugjald til að kosta þjóðvegakerfi landsins. Bæjarstjórn Reykjanesbæjar tekur undir með sjónarmiðum sem fram hafa komið, m.a. frá FÍB, að ekki sé eðlilegt að íbúar á SV-horni landsins séu aðgreindir frá almennu kostunarkerfi þjóðvegakerfisins og á þá séu settir sérstakir vegatollar."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×