Hafnfirsk hjón vilja meiri jákvæðni 8. janúar 2010 06:00 Ágúst og Agnes hvetja Alþingi til að koma sér upp úr neikvæðninni og niðurrifinu. Fréttablaðið/GVA „
Við hvetjum til jákvæðni, samheldni þingmanna og allrar þjóðarinnar,“ segir Ágúst Guðbjartsson, sem ásamt konu sinni Agnesi Reynisdóttur leggur nú sitt á vogarskálar Nýja Íslands með Facebook-síðu, undirskriftasöfnun og bloggsíðu á bloggheimar.is/jakvaett – allt í anda jákvæðni og bjartsýni. Þau safna undirskriftum til 26. janúar og ætla að afhenda þær Alþingi þá. Hjónin eru að sögn Ágústar bara venjulegt fólk í Hafnarfirði sem vill aftur fá virðingu fyrir Alþingi Íslendinga. Þau tala örugglega fyrir munn flestra. „Við viljum einungis minna alþingismenn á, burtséð hvaða flokki þeir tilheyra, að vera málefnalegir og lausnamiðaðir í umræðum sínum, og gæta þess að festast ekki í neikvæðni og niðurrifi. Þeir eru að kalla hver annan landráðamann og fleira í þeim dúr og eru bara engan veginn nógu góð fyrirmynd. Ég held að vondi mórallinn á Alþingi smiti úr frá sér. Fólk á nú bara að brosa meira til hvert annars. Það sé ekki fullt af bölmóði. Það er ekki allt að fara til fjandans. Við höfum lent í krísum í gegnum tíðina og alltaf komist í gegnum þær.“ Ágúst var sölumaður í byggingavöruverslun áður en hann missti vinnuna í desember. „Ég neita að leggjast í þunglyndi. Það kemur ekkert út úr því. Fólk hugsar skýrar ef það er jákvætt, en þegar það er reitt. Við hjónin eigum von á fyrsta barninu okkar í næstu viku og viljum bara að drengurinn okkar komi inn í samfélag þar sem gott er að ala börn upp í.“- drg
Mest lesið Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Lést af völdum alnæmis Lífið „Þetta eru pjöllu-klútar“ Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert Lífið Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás Lífið Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Lífið Synir Britney gengu tískupallinn í París Tíska og hönnun Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið Fleiri fréttir Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Fréttatía vikunnar: Hvalveiðar, þvottabjörn og gjaldskylda Kominn á toppinn Leggur til að hætt verði lestri kveðja við útfarir Lét drauminn rætast á Ítalíu Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Nálgast hundrað þúsund fylgjendur á Instagram og rekur sveitahótel Sindri gerðist trukkabílstjóri Piparmeyjan Paul mæti á skjáinn í júlí Laufey óskar ástinni sinni til hamingju með daginn Kolfinna Nikulás og Sturla Atlas halda á ný mið Greta Salóme á von á sínu þriðja Sjá meira
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið
Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Lífið