Laganemar á teppið eftir ferð á Þingvelli 29. október 2010 06:15 Framkoma ölvaðra laganema í vísindaferð á Þingvöllum 10. september síðastliðinn varð til þess að fulltrúar stjórnar félagsins þurftu að biðjast afsökunar á félögum sínum.Fréttablaðið/ „
Það voru nokkur rotin epli sem skemmdu fyrir hópnum," segir Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson, formaður Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, um ferð félagsins á Þingvelli í síðasta mánuði. Orator fer árlega með nýnema í „vísindaferð" á haustin á Þingvelli. Jafnan eru einhverjir úr hópi eldri nema með í förinni. Mörg næstliðin ár hefur ölvun verið áberandi í þessum ferðum. Þingvallanefnd lýsir ferðinni í síðasta mánuði sem „skrílslátum". Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins drukku leiðangursmenn Orator margir áfengi ótæpilega á för sinni um Almannagjá og víðar um þjóðgarðinn og var framkoma þeirra í samræmi við það. „Menn eru eðlilega viðkvæmir fyrir slíkri hegðun á Þingvöllum því þetta er heilagur staður í huga flestra," segir Álfheiður Ingadóttir, formaður Þingvallanefndar, sem kveður alls konar kvartanir hafa borist vegna framgöngu Orators-liða og það ekki í fyrsta sinn. Ölvun hafi um margra ára skeið verið áberandi í þessum haustferðum. Álheiður segir að hún og Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður hafi í kjölfarið rætt við formann og varaformann Orators. „Við erum mjög ánægð með það samtal sem við áttum og stjórn Orators hefur ákveðið hvernig að þessu verður staðið framvegis. Næsta haust þegar laganemar koma til Þingvalla þá verður tekið á móti þeim eins og tekið er best á móti gestum þjóðgarðsins. Við viljum taka á móti laganemum sérstaklega á Þingvöllum með viðeigandi hætti," ítrekar formaður Þingvallanefndar. „Við fórum á fund með þjóðgarðsverði og formanni Þingvallanefndar og erum búin að setja nýjar reglur um þessa ferð. Þannig að þetta mun aldrei gerast aftur og við erum búin að biðjast afsökunar. Okkur brá auðvitað og það verður ekki leyft að hafa áfengi um hönd í þessum ferðum framvegis," segir formaður Orators og undirstrikar að félagið snúist alls ekki um áfengisdrykkju. „Við veitum almenningi til dæmis ókeypis lögfræðiaðstoð öll fimmtudagskvöld og höfum staðið fyrir málþingum um ýmis merk mál á borð við gengistryggingu lána og mansal," segir Rögnvaldur Gunnar Gunnarsson. gar@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira