Ástarsaga í Herjólfi - skipstjórinn gaf þýskt par saman Andri Ólafsson skrifar 27. ágúst 2010 19:35
Þýskt par var gefið saman um borð í Herjólfi í vikunni. Það var skipstjórinn sjálfur sem sá um hjónavígsluna en hann segir að athöfnin hafi verið ákaflega rómantísk. Þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé sem hjónavígsla fer fram í áætlunarsiglingu hér við land. Skipstjórinn á Herjólfi, Steinar Magnússon hefur upplífað ýmislegt á sjó á sínum ferli en aldrei þetta. En hvernig kom þetta til? „Við vorum í hádegisferðinni á miðvikudag og þá kom ungt par til mín og spurði hvort ég vildi gifta þau," segir Steinar Magnússon skiptstjóri á Herjólfi. Steinar hváði og tjáði parinu að hann hefði líklegast ekki réttindi til að vígja hjón en fyrir þrábeiðni þjóðverjana lét hann tilleiðast „Þannig að þegar við komum til Vestmannaeyja fékk ég aðstoð hjá prestinum til að útbúa pappírana og klukkan fimm þegar við fórum af stað voru þau mætt og athöfnin fór fram inn í brú." Og þannig voru þau Dirk og Manulega gefin saman af Steinari skipstjóra í viðurvist tveggja stýrimanna sem vottuðu. „Já, þetta var bara alveg eins og það gerist best. Þau voru mjög ástfangin og þetta var falleg stund," segir Steinar þó hann efist um að þetta standist lög eins og þau séu uppáskrifuð - „...en ástin var alveg lögleg," segir hann og hlær.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Fleiri fréttir Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Sjá meira