Urða verslunarhöll á meðan kreppan ríkir gar@frettabladid.is skrifar 27. ágúst 2010 08:00 Sökklar að tólf þúsund fermetra verslunarmiðstöð voru steyptir rétt fyrir hrun. Engin þörf er á húsinu og því verður einfaldlega mokað yfir framkvæmdina. Fréttablaðið/Vilhelm
Reginn, dótturfélag Landsbankans, sem leysti til sín risavaxna lóð með sökkli að tólf þúsund fermetra verslunarmiðstöð er nú að láta moka yfir allan grunninn. „Menn hafa ekki sýn á það að það verði byggt ofan á sökkulinn á næstunni og bæjaryfirvöld hafa þrýst mjög fast á að það verði gengið sómasamlega frá þessu," segir Gísli Norðdahl, byggingafulltrúi í Kópavogi, Sökkullinn undir húsið í Skógarlind 1 var steyptur vorið 2008 að sögn Gísla. Byggingin átti að verða samtals tólf þúsund fermetrar á tveimur hæðum ofan á opnum bílakjallara. Til samanburðar má nefna að byggingin sem hýsir meðal annars stórverslanir Elkó, Intersport og Krónuna þar við hliðina er um tíu þúsund fermetrar. Kvartanir hafi borist frá íbúum í Lindarhverfi vegna þess að lóðin hafi verið ófrágengin um langa hríð. Verktakafyrirtækið JB byggingarfélag átti lóðina og steypti sökklana. Að sögn Gísla hafði ekki verið ákveðið nákvæmlega hvaða rekstur yrði í húsinu heldur hafi einfaldlega verið rætt um óskilgreinda verslunar- og þjónustustarfsemi. Landsbankinn hafi átt ítök í lóðinni. Í kjölfar þess að JB Byggingarfélag hafi komist í þrot í fyrravetur hafi bankinn leyst til sín eignina fyrir nokkrum vikum. Nú sé hún í umsjá Regins, fasteignafélags bankans, sem staðið hafi sig með prýði gagnvart bæjaryfirvöldum. „Þeir eru nú að beygja steypustyrktarjárnin og setja grús yfir og ætla að slétta þetta og gera snyrtilegt. Þetta er alfarið á þeirra kostnað," undirstrikar Gísli og bætir við að varnargirðingin umhverfis lóðina verði tekin niður og svæðið opnað. „Næsta vor verður síðan sáð grasi og lóðin gæti orðið bæjarprýði." Aðspurður segir Gísli um einsdæmi að ræða í Kópavogi þótt mokað hafi verið ofan í nokkra einbýlishúsagrunna. Eftir hrunið hafi menn „úti um allan bæ" lent í töfum á byggingaframkvæmdum og bæjaryfirvöld hafi sýnt tilslakanir. „Þetta eru erfiðir tímar en það þarf alltaf að finna lausn á málunum." Ekki náðist í framkvæmdastjóra Regins í gær. Gísli segir algerlega óljóst hvað verði um hinn mikla sökkul. Ef til vill verði hann grafinn upp aftur síðar. „Hugsanlega nýta menn þessar undirstöður fyrir það hús sem þær eru ætlaðar fyrir eða þá að þarna kemur eitthvað allt annað. Nú bíður þetta bara næstu uppsveiflu."
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Sjá meira