Vildu koma í veg fyrir brottflutning hersins með stuðningi við stríð Þorbjörn Þórðarson skrifar 26. nóvember 2010 12:17 Mynd úr safni.
Stuðningur Íslands við innrás Bandaríkjamanna í Írak árið 2003 var til að koma í veg fyrir að Bandaríkjamenn lokuðu herstöðinni á Miðnesheiði. Þetta sýnir minnisblað úr utanríkisráðuneytinu. Ísland var á lista hinna staðföstu þjóða sem birtur var hinn 18. mars 2003, tveimur dögum áður en Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra réðust inn í Írak. Í minnisblaði sem Guðni Bragason, sendifulltrúi, skrifaði eftir að hann og sendiherra Íslands í Washington gengu á fund embættismanns í bandaríska utanríkisráðuneytinu í mars 2003 og tilkynntu formlega um stuðning Íslands við innrásina kemur fram að fulltrúar íslenskra stjórnvalda hefðu vakið athygli Bandaríkjamanna á því að á sama tíma og Bandaríkjastjórn væri að leita eftir stuðning væru fyrirætlanir um að loka herstöðinni, að því er fram kemur í Fréttatímanum í dag. Minnisblað Guðna er birt í heild sinni Fréttatímanum í dag. Þar segir að sendiherrann og Guðni hafi gengið á fund Heather Conley, varaaðstoðarutanríkisráðherra fyrir Norður og Mið-Evrópu. Á fundinum hafi sendiherrann viljað undistrika að ákvörðun um að fara á lista hinna staðföstu þjóða hafi ekki verið auðveld sérstaklega í ljósi þess að Íslandi hafi ekki haft yfir herafla að ráða. Í ljósi komandi alþingiskosninga hefði ríkisstjórnin því tekið mikla áhættu með þessum afgerandi stuðningi við hernaðaraðgerðir án samþykkis Öryggisráðs Sameinuðu Þjóðanna. Þá hafi sendiherrann minnt á að Ísland gæti orðið skotmark hryðjuverkasamtaka vegna stuðningsins. Þá segir í minnisblaðinu að Heather Conley hafi sagst vilja segja, án þess að það yrði haft eftir, að Bandaríkjastjórn áttaði sig vel á að stuðningur ríkja við aðgerðirnar væri dýrkeyptur. Á henni hafi mátt skilja að stuðningur Íslands myndi hafa jákvæð áhrif á umfjöllun bandaríska varnarmálaráðuneytisins um málefni sem útistandandi væru í varnarsamstarfi ríkjanna hver svo sem niðurstaðan yrði.
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Innlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Innlent Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Innlent Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum Innlent Fleiri fréttir Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Skip Watsons komið inn í íslenska efnahagslögsögu Slösuð göngukona flutt með þyrlunni „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Festa lengri opnunartíma lauganna um helgar í sessi Undirbúningur vegna almyrkvans víða á lokametrunum „Fólk sem er á bið á ekki að vera þjónustulaust“ Hrun úr Reynisfjalli: „Ansi mikil bergfylla sem hefur farið þarna niður“ Bíður milli vonar og ótta á meðan fjölskyldan er föst undir hótelrústum Notuðust við dróna við að ná utan um stórfellda líkamsárás Hætta á að námsframboð dragist saman Hitamet slegið í Danmörku: Börnin að bráðna inni á sófanum „Þegar við komum til Íslands munum við stöðva hann“ Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna „Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja Hrafnagilshverfi stækkar ört Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Sjá meira