Kennir aresenikkmengun frá Hellisheiðarvirkjun um skepnudauða Karen Kjartansdóttir skrifar 26. ágúst 2010 18:30 Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir hefur rannsakað arsenikmengunina upp á eigin spýtur.
Bændur í nágrenni Hveragerðis óttast að neysluvatn hafi mengast af arsenikki, sem hugsanlega komi frá Hellisheiðarvirkjun. Tvær kýr drápust á bænum í fyrra af ókunnum ástæðum. Þau Ingileif Steinunn Kristjánsdóttir og Diðrik Sæmundsson á bænum Friðarstöðum við Hveragerði furðuðu sig á því hve illa kýr á bænum þeirra þrifust. Þau reyndu að gefa skepnunum meiri fóðurbæti til að koma þeim til heilsu en án árangurs. Í fyrra var ástandið orðið mjög slæmt og farið var að bera á skepnudauða. Ingileif er doktor í landbúnaðarvísindum frá háskóla Uppsölum í Svíþjóð og sérfræðingur í jurtalífefnfræði og lífeðlisfræði. Einnig hefur hún numið sameindaerfðarfræði. Hún kann því nokkur skil á efnafræði og renndi í grun að eitthvað væri að vatninu sem skepnurnar höfðu drukkið. Hún tók hársýni af annarri kúnni og sendi til rannsóknar í Sviss og Flórída-fylkis í Bandaríkjunum. Niðurstöðurnar frá rannsóknarstofunum voru samsvarandi og segir hún þær sláandi. „þessi kýr er með arsenikeitrun greinda," segir hún. Ingileif segir að því hafi verið haldið fram að skepnurnar hafi verið vanfóðraðar hjá þeim hjónum. Hún segir að það hafi ekki verið vegna þess að þeim hafi lítið verið gefið enda hafi dýrin drepist ofan í fóðurbæti. Hún segir dýrin hreinlega hafa hætt að þrífast, misst mótstöðu fyrir sníkjudýrum og hún hafi viljað leita skýringa á því með þeirri þekkingu sem hún býr að. Skrokkar tveggja dauðra kúa voru sendir á tilraunastöðina á Keldum ásamt blóðsýnum. Hún segir að rannsóknir á skrokkunum hafi sýnt lítið annað en það sem hún vissi fyrir. Einhverra hluta vegna hafi blóðsýni úr þeim, sem senda átti til Danmerkur, týnst, hún segist þó hafa búið svo vel að eiga fleiri sýni en engar niðurstöður hafi skilað sér frá Keldum. Keldur vildu ekki staðfesta þetta við fréttastofu þegar eftir því var leitað í gær. Því næst sendi Ingileif mjólkursýni úr lifandi kýr til Matís og bað um að kannað væri hvort í mjólkinni væri að finna arsenik, öðru nafni arsen, og kvikasilfur. Ekkert kvikasilfur fannst en magn arseniks í mjólkinni var svo mikið að ef um drykkjarvatn hefði verið að ræða væri það á mörkum þess að teljast drykkjarhæft. Hún bendir á rannsókn sem gerð var í Bangladesh þar sem vatn hafði megast af arseniki. Kannað var hve mikið arsenik var drykkjarvatni sem mæður með barn á brjósti drukku. Því næst var kannað hve mikið arsenik skilaði sér í móðurmólkina. Hún segir að í ljós hafi komið að tuttugu sinnum minna af arseniki var í móðurmjólkinni en var í vatninu. Ingileif segir að því sé ljóst að arsenikið sem kýrin hafði komist í var mjög mikið miðað við hve mikið var af því í mjólk hennar. Ingileif segist hafa haft samband við dýralækni vegna málsins en svör hans verið þau að engar reglugerðir væru til um arsenik í mjólk. Ingileif og eiginmaður hennar halda engar mjólkandi kýr lengur vegna þessa. Arsenikmengun fylgir alltaf jarðvarmavirkjunum en hér á landi telja sérfræðingar að lítil sem engin hætta sé á ferðum.Þá segir hún að nú sé nær alltaf skrúfað fyrir holu sautján við Hellisheiðarvirkjun sem mest af arseniki barst upp um. Endurbætur hafi einnig verið gerðar á vatnsveitunni í Hveragerði. Því telji hún að dregið hafi úr hættu sem stafi af virkjuninni á Hellisheiði. „Það er ekki hreint vatn sem er að koma upp úr þessum holum. Það er alveg á tæru."
Tengdar fréttir Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi. 26. ágúst 2010 18:20 Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira
Arsenikkmengun: Vísindamenn vilja rannsókn Vísindamenn telja að rannsaka þurfi betur arsenikkmengun í tengslum við gufu frá Hellisheiðarvirkjun. Heilbrigðiseftirlit Suðurlands fullyrðir að neysluvatn á Friðarstöðu og í Hveragerði sé í lagi. 26. ágúst 2010 18:20