Varaþingmaður Þráins hefði kosið gegn fjárlagafrumvarpinu 20. desember 2010 12:15 Þráinn Bertelsson er nú í VG, en varamaður hans ekki.
Varaþingmaður Þráins Bertelssonar segist hafa greitt atkvæði gegn fjárlagafrumvarpinu ef hún hefði átt sæti á þingi, en frumvarpið var samþykkt með einum þingmanni í síðustu viku. Hún segist ekki styðja ríkisstjórnina. Katrín Snæhólm Baldursdóttir liðsmaður Hreyfingarinnar er varaþingmaður Þráins Bertelssonar sem á dögunum gekk til liðs við Vinstri græna. Þráinn greiddi atkvæði með fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku en það var samþykkt með atkvæðum þrjátíu og tveggja þingmanna. 31 þingmaður sat hjá og enginn greiddi atkvæði á móti. En hvað hefði varamaður Þráins gert, ef hún hefði setið á þingi við afgreiðslu frumvarpsins? „Ég styð ekki þetta fjárlagafrumvarp og mér finnst að í svona stórum málum þar sem fólk er kjörið inn á þing til þess að taka afstöðu þá eigi það að kjósa á móti ef það er ekki hlynnt. Ég hugsa að ég hefði greitt atkvæði á móti frumvarpinu í stað þess að sitja hjá," segir Katrín. Líkt og fram hefur komið í fréttum greiddu þrír þingmenn vinstri grænna fjárlagafrumvapinu ekki atkvæði sitt. Ólafur Þ. Harðarson stjórmálafræðingur segir í Fréttablaðinu í dag að stuðningurinn við ríkisstjórin sé greinilega mjög knappur. Á endanum sé þetta samt sem áður spurning um hvort þessir þrír þingmenn séu tilbúnir til þess að verja stjórnina vantrausti. En styður varamaður Þráins ríkisstjórnina? „Nei það geri ég ekki. Mér finnst líka að vegna þess sem stendur í Stjórnarskránni, að þú eigir að fylgja þinni innstu sannfæringu, þá hafi þetta verið rétt hjá þeim að fara þessa leið. Við erum alltaf að tala um að hér verði að verða breyting á þessu svokallaða flokksræði. Þetta er skref í átt að breytingum, það er að flokksræðið minnki. Að menn fari að kjósa samkvæmt sinni innstu sannfæringu, hverju sinni." Þráinn segir sjáflur í Fréttablaðinu í morgun að óþarfi sé að hafa áhyggjur af því að hann forfallist á þingi, hann sé heilsugóður og bjargist ágætlega án varamanns. Katrín segist hinsvegar klár, ef kallið kemur.
Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Innlent Fleiri fréttir Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Púðurtunnan Vestanhafs, þandar taugar og hörð lending Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Borgarfulltrúi fer ekki aftur fram og hættir í Pírötum Ekki hægt að fullyrða að andlát hafi tengst Covid-19 bólusetningu „Einfaldlega ósammála“ gagnrýni ráðuneytisins Kynna einn frambjóðanda á dag næstu daga Ekki skrýtið að eitthvað bresti vegna álags á framlínustarfsmenn Tveir grunaðir um að rækta hundruð kannabisplantna Verkalýðshreyfingin úti á túni með sitt tal? Mál rússnesku fjölskyldunnar: Króatía sé talið öruggt land Enga ákvörðun tekið um Þórdísi Kolbrúnu Heiða tekur annað sætið í Reykjavík Meiri hveralykt af vatninu vegna viðhalds og viðgerðar Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Heiða hefur ekki heldur svarað uppstillingarnefnd Helga Kristín gengur til liðs við Miðflokkinn Innleiða bílnúmeralesara til að athuga hvar bílar eru skráðir Stefnir í hallarekstur og uppsagnir hjá Stígamótum „Þetta er auðvitað glæsilegt fyrir flokkinn“ Þingfundi ekki frestað vegna handboltans Leitað að fleira fólki á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Eldur kviknaði í Strætó Starfslokasamningar kostað undirstofnanir fleiri hundruð milljónir Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Fannst vanta stemmningu í skólann og skipulögðu handboltamót Foreldrar loki á samskipti barna við ömmu og afa Sjá meira