Innlent

Hefur þú séð grænan Land Cruiser?

Bíllinn er með númerið MD-522 og er grænn á litinn.
Bíllinn er með númerið MD-522 og er grænn á litinn.
Lögreglan á Hvolsvelli auglýsir eftir Toyota Land Cruiser jeppa með skráningarnúmerið MD-522. Jeppinn er svokallaður 90 Cruiser og er dökk grænn og grár að neðan. Honum var stolið í morgun á milli klukkan 8 og 13 við Grunnskólann á Hvolsvelli.

Þeir sem hafa upplýsingar um ferðir bílsins eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Hvolsvelli í síma 488-4110.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×