Innlent

Opnaði indverska sendiráðið

Preneet Kaur, ráðherra utanríkismála Indlands, kom í opinbera heimsókn hingað til lands í dag. Heimsóknin hefst á fundi með Össuri Skarphéðinssyni utanríkisráðherra en auk hans mun Kaur hitta forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson.

Á dagskrá Kaur er einnig heimsókn í Alþingi, fundur með forseta Alþingis, Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, og fundur með utanríkismálanefnd. Á myndinni sést hún opna sendiráð Indlands á Íslandi fyrr í dag en einnig mun Kaur kynna sér starfsemi Hellisheiðarvirkjunar og heimsækja Árnessýslu, Akureyri og Mývatn, að því er fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×