Varaformaður Siðmenntar stígur til hliðar í mannréttindaráði Erla Hlynsdóttir skrifar 2. nóvember 2010 08:58 Bjarni Jónsson segir ákvörðunina byggja á einlægri ósk sinni um að málefnið fái málefnalega umfjöllun þannig að áherslan verði á innihald en ekki formsatriði.
Bjarni Jónsson, fulltrúi Samfylkingar í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar, hefur dregið sig í hlé frá afgreiðslu tillögu mannréttindaráðs um samskipti trúfélaga og skóla. Bjarni er varaformaður Siðmenntar, félags húmanista, og gagnrýndu sjálfstæðismenn í ráðinu að Bjarni tæki þátt í afgreiðslu málsins þar sem að þeirra mati hafði hann hagsmuna að gæta af því hver niðurstaðan yrði. Meirihluti ráðsins komst þó að þeirri niðurstöðu að Bjarni væri vel hæfur. Engu að síður hefur Bjarni ákveðið að stíga til hliðar. Í bókun sem Bjarni lagði fram á síðasta fundi mannréttindaráðs segir um þessa ákvörðun hans: „Ástæðan er sú að reynt hefur verið að gera mannréttindamál tortryggileg vegna stöðu minnar sem varaformanns Siðmenntar en einnig er gefið í skyn að ég eigi hagsmuna að gæta en með slíkum málflutningi er verið að hefta lýðræðislega umræðu. Að baki þessari ákvörðun liggur einlæg ósk mín að málefnið fái málefnalega umfjöllun þannig að áherslan verði á innihald en ekki formsatriði. Ég tel mig vel hæfan að leggja fram og afgreiða hvað mannréttindamál sem fyrir ráðið kemur enda sit ég í umboði kjósenda í Reykjavík en er ekki á klafa hagsmunahópa." Margrét Sverrisdóttir, Margrét Kristín Blöndal, Kristín Heiða Pétursdóttir og Elín Sigurðardóttir létu í kjölfarið bóka: „Við undirrituð, fulltrúar og varafulltrúar Samfylkingar, Besta Flokks og Vinstri Grænna í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar virðum ákvörðun Bjarna Jónssonar og föllumst á hana til þess að ekki verði deilt um formsatriði heldur innihald þeirrar tillögu sem hér er til umfjöllunar." Að því loknu vék Bjarni af fundi og Ingibjörg Stefánsdóttir tók þar sæti. Næsti fundur mannréttindaráðs er á morgun og er þá búist við að tillaga ráðsins um samskipti trúfélaga við leik- og grunnskóla verði send áfram til umsagnar hjá mennta- og íþróttaráði, tómstundaráði og velferðarráði.
Tengdar fréttir Trúboð presta í leikskólum bannað Meirihluti fulltrúa í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar hefur lagt fram drög að ályktun um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir að fermingarfræðsla skuli fara fram utan skólatíma. Auk þess verða heimsóknir starfsmanna trúar- og lífsskoðunarfélaga á frístundaheimili, í leik- og grunnskóla óheimilar ef ályktunin verður samþykkt. 15. október 2010 14:47 Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Fleiri fréttir Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Sjá meira
Trúboð presta í leikskólum bannað Meirihluti fulltrúa í mannréttindaráði Reykjavíkurborgar hefur lagt fram drög að ályktun um samskipti leik- og grunnskóla við trúfélög. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir að fermingarfræðsla skuli fara fram utan skólatíma. Auk þess verða heimsóknir starfsmanna trúar- og lífsskoðunarfélaga á frístundaheimili, í leik- og grunnskóla óheimilar ef ályktunin verður samþykkt. 15. október 2010 14:47