Átta salerni fyrir 30 þúsund ferðamenn 22. desember 2010 06:15 Allt að þrjátíu þúsund heimsækja Hveravelli á tveimur mánuðum yfir sumarið. Svæðið þolir slíka umferð engan veginn eins og aðstæður eru þar núna.
Aðstaða til að taka á móti ferðafólki á Hveravöllum er ekki boðleg og umbætur þola enga bið, er mat Hveravallafélagsins sem sér um rekstur á svæðinu. Hreinlætismál eru stærsti vandinn en aðeins átta salerni eru á staðnum fyrir þrjátíu þúsund manns sem heimsækja svæðið á aðeins tveimur mánuðum að sumarlagi. Það fyrsta sem margir gestir gera við komuna til Hveravalla er að standa í biðröð til að komast á klósett, enda er mesta umferðin bundin við fáeina klukkutíma yfir hádaginn. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt eftir málþing Hveravallafélagsins í október. Í hnotskurn eru úrlausnarefnin eftirfarandi að mati nefndarinnar: „Húsnæði er lítið og gamalt og þar með aðstaða til veitingarekstrar og gistingar, ekkert neysluhæft vatn er til staðar, rafmagn er framleitt með dísilvélum með tilheyrandi kostnaði, salernisaðstaða er ófullnægjandi, sorpmagn er verulegt og þarf að flytja til byggða, aðgengi og verndun hverasvæðisins er ábótavant, tjaldstæði er of lítið, óviðunandi aðstaða er fyrir landverði og annað starfsfólk og fjármagn til úrbóta er af skornum skammti.“ Hveravellir eru friðlýst svæði samkvæmt náttúruverndarlögum og tilheyra Húnavatnshreppi. Hveravallafélagið, sem er nær alfarið í eigu sveitarfélagsins, sér um rekstur svæðisins. „Þetta er vart bjóðandi öllu lengur,“ segir Stefán Haraldsson, atvinnuráðgjafi SSNV atvinnuþróunar, um ástandið á Hveravöllum. Hann segir að samkvæmt nýju deiliskipulagi og umhverfismati sveitarfélagsins eigi þær byggingar sem fyrir eru að víkja fyrir nýjum. „Í fullkomnum heimi yrði byggð þjónustumiðstöð sem hefði tekjur til að reka hreinlætisaðstöðu á Hveravöllum og allt sem henni tilheyrir. En á stað þar sem starfsemi er í gangi í tvo mánuði á ári þá er erfitt að reikna þetta dæmi, ef leggja á í þetta verulegar upphæðir.“ Stefán segir vandamálið felast í því að ekki er hægt að bæta aðstöðuna sem fyrir er þar sem deiliskipulagið geri ráð fyrir því að hún fari. Í samantekt Hveravallafélagsins segir að ef nauðsynleg uppbygging Hveravalla á að verða að veruleika þurfi að koma til samstarf ríkis, sveitarfélagsins, rekstraraðila á svæðinu og ferðaþjónustuaðila sem nýta svæðið með einhverjum hætti. Á málþinginu komu engar hugmyndir fram hvernig slíku samstarfi ætti að vera háttað.svavar@frettabladid.is
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Erlent Fleiri fréttir Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Sjá meira