Innlent

Tvöföldun Suðurlandsvegar frestast

Kristján Már Unnarsson skrifar

Kærunefnd útboðsmála hefur stöðvað samningagerð vegna tvöföldunar Suðurlandsvegar við Sandskeið. Nefndin telur vafa leika á að Vegagerðin hafi staðið rétt að málum við val á verktaka. Vegna þessa tefst að hefja framkvæmdir um nokkra mánuði.

Það ætlar ekki að ganga vandræðalaust fyrir stjórnvöld að koma nýjum framkvæmdum í gang en tvöföldun Suðurlandsvegar á sjö kílómetra kafla milli Lögbergsbrekku og Litlu Kaffistofunnar stefndi í að verða fyrsta stóra verkið í vegagerð eftir hrun. Skilyrði í útboði um að ársvelta fyrirtækis bjóðanda hafi að lágmarki verið sem nemur 50% af tilboði bjóðanda í verkið síðastliðin 3 ár, er nú orðið tilefni kærumáls milli Vegagerðarinnar og Háfells, þess verktaka sem átti þriðja lægsta boð.

Vegagerðin hafði sjálf hafnað lægsta boði frá Arnaverki, upp á 607 milljónir króna, á grundvelli þessa skilyrðis um lágmarksveltu, og ákveðið að semja við Vélaleigu AÞ, sem átti næstlægsta boð upp á 619 milljónir. Háfell telur hins vegar að Vélaleigan AÞ fullnægi heldur ekki skilyrði um lágmarksveltu og hefur kært Vegagerðina. Viðurkennt er að Vélaleigan nær ekki lágmarksveltu eitt árið en deilt er um þá túlkun Vegagerðarinnar á skilyrðinu að verktaki þurfi ekki öll þrjú árin að hafa náð lágmarkveltu heldur nægi að hún sé að meðaltali þesssi þrú ár yfir lágmarkinu.

Kærunefnd útboðsmála telur vafa um að Vegagerðin hafi réttilega staðið að málsmeðferð og hefur því stöðvað samningsferlið þar til endanlega hefur verið skorið úr kæru. Niðurstaða fæst að öllum líkindum ekki fyrr en síðsumars og því blasir við að upphaf framkvæmda tefst fram á haust hið minnsta.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×