Innlent

Almannavarnir vara við vatnavöxtum

Talsverð úrkoma er í spákortunum á svæðinu kringum Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul í dag. Búist er við úrkomu allt að fimm millimetrum á klukkustund og beinir Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra þeim tilmælum til fólks sem er á ferli á svæðinu að hafa varann á. Hætta er talin á vatnavöxtum og skriðuföllum úr fjöllum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×