Mikið af amfetamíni í umferð um helgina 1. ágúst 2010 18:41
Lögreglan í Vestmannaeyjum og í Borgarnesi hefur lagt hald á talsvert meira magn af fíkniefnum um verslunarmannahelgina í ár en undanfarin ár. Amfetamín er áberandi á Þjóðhátíð. Lögreglan í Borgarnesi hefur tekið mikið af kannabisefnum ætluðum til sölu á Akureyri og Snæfellsnesi. Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur haft afskipti af þrjátíu og sjö fíkniefnamálum það sem af er Þjóðhátíð en samtals hefur verið lagt hald á nálægt 300 grömmum af fíkniefnum. Um er að ræða töluvert meira magn af efnum en síðustu ár. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum hefur mest fundist af amfetamíni, eða um helmingur alls þess sem tekið hefur verið, en einnig hefur verið þó nokkuð um kókaín. Fólkið sem hefur verið tekið með fíkniefni í Eyjum um helgina er á aldrinum 18-30 ára. Lögreglan í Borgarnesi hefur haldlagt á bilinu 400-500 grömm af fíkniefnum það sem af er helginni, sem er líkt og í Eyjum talsvert meira magn en í fyrra og árið þar á undan. Nær eingöngu er um að ræða kannabis. Flest málin hafa komið upp við umferðareftirlit á svæðinu og eru nokkrir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Lögreglan telur að efnið sem haldlagt hefur verið hafi verið ætlað til sölu á Akureyri og vestur á Snæfellsnesi. Þórarinn Tyrfingsson, formaður SÁA, segir ekki koma á óvart að mikið sé um amfetamín í Eyjum, það sé í samræmi við þá þróun sem hann hafi séð á síðustu tveimur árum. Amfetamín sé mun ódýrara en kókaín, enda hafi neysla á kókaíní snarminnkað eftir efnahagshrunið. Hann segir að þó lögreglan hafi lagt hald á meira magn af fíkniefnum í ár en undanfarin ár þýði það ekki að meira magn sé í umferð. Aukin samvinna við tollgæslu og meira eftirlit geti verið skýringin.
Mest lesið Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur Innlent Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Innlent „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Innlent Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Innlent Leita enn að geranda í stungumáli Innlent Fleiri fréttir Vill lægri skatta á matvöruverð og leitað að stungumanni Leita enn að geranda í stungumáli Epstein-skjölin, verðbólgan og bréf leikskólastjóra Flugfólkið þurfti stöðugt að varast trúarlögregluna Maður stunginn í miðbæ Reykjavíkur „Við þurfum að horfast í augu við þessa fortíð“ Orri oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði Birgir Örn óviss en Ísak Leon handviss Þór leiðir aftur á Seltjarnarnesi María Ellen kjörin oddviti Viðreisnar í Kópavogi Orri áfram oddviti Framsóknar í Kópavogi Jónas Már kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi Þorvaldur og Halldór með Einari og Magneu í Framsókn Einn handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni „Þetta er náttúrulega bara rotið og galið“ Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Sjá meira