Leyfi til stækkunar bíður deiliskipulags Óli Kristján Ármannsson skrifar 27. ágúst 2010 07:30 Forstjóri HS Orku kvaðst nýverið vonast til að virkjanaleyfi vegna stækkunar Reykjanesvirkjunar fengist í næsta mánuði. Það verður þó tæpast fyrr en lokið hefur verið við deiliskipulag svæðisins í nóvember. Fréttablaðið/Valli
Gert er ráð fyrir að breyting á deiliskipulagi Reyjaness og Grindavíkur verði staðfest um mánaðamótin október nóvember þegar Skipulagsstofnun hefur farið yfir hana, að sögn Magneu Guðmundsdóttur, formanns umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar. Orkustofnun getur ekki gefið leyfi fyrir stækkun Reykjanesvirkjunar fyrr en nýtt deiliskipulag hefur verið samþykkt. Sveitarfélögin höfðu áður bæði samþykkt tillögu að deiliskipulagi þar sem gert var ráð fyrir stækkun virkjunarinnar og fjölgun borhola, en vegna formgalla á umhverfis-skýrslu þurfti að endurtaka þá vinnu. Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku, sagði í viðtali við Fréttablaðið í vikunni að tafir á deiliskipulagi á fyrirhuguðu virkjanasvæði hefðu keðjuverkandi áhrif, erfitt væri að ljúka samningum án þess að orka væri til staðar. Hann sagði þá jafnframt að vonir stæðu til þess að leyfi til stækkunar virkjunarinnar skiluðu sér í næsta mánuði. Núna er hins vegar ljóst að það verður tæpast fyrr en í nóvember í fyrsta lagi, þar sem hendur Orkustofnunar til að gefa út virkjanaleyfi eru bundnar þar til gengið hefur verið frá deiliskipulaginu. „Við gefum út leyfi á grundvelli gildandi skipulags," segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri og bætir við að frágangur deiliskipulagsins sé því ein forsendanna fyrir því að hægt verði að gefa út virkjanaleyfi til HS Orku. Hann segist þó ekki geta svarað því hvort stækkun Reykjanesvirkjunar strandi á því einu að deiliskipulagið hafi ekki verið klárað. „Við erum bundnir trúnaði og fjöllum ekki um einstök atriði umsóknar eða afgreiðslu meðan á henni stendur." Guðni segir það í höndum sveitarfélaganna hvenær lokið verði við deiliskipulagið, það sé nú í auglýsingaferli og að því loknu taki við einhver vinna, en tímalengd hennar ráðist að nokkur af fram komnum athugasemdum. Magnea segir að aðalskipulag sem sé yfir deiliskipulaginu hafi þegar tekið gildi. „En deiliskipulagið var auglýst í júlí og athugasemdafrestur vegna þess rennur út 14. september." Breytingatillagan liggur frammi á skrifstofum Reykjanesbæjar og Grindavíkur til 7. september. Fram kemur í deiliskipulagsauglýsingunni 22. júlí að fyrirhugaðar breytingar felist meðal annars í „stækkun núverandi jarðvarmavirkjunar, bættu aðgengi og öryggi ferðamanna á svæðinu auk samræmingar deiliskipulags við núverandi aðstæður og fyrirkomulag".
Mest lesið Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Innlent Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Innlent Steinþór sýknaður í Hæstarétti Innlent Einar horfir til hægri Innlent „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Innlent Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar Erlent Loka bandaríska sendiráðinu í Ísrael Erlent Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Innlent Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Innlent Árásum á Teheran fjölgar og enn einn hershöfðinginn felldur Erlent Fleiri fréttir Ökumaðurinn slapp naumlega: Þrjú þúsund lítrar af olíu um borð Pípari sagði skólp ástæðuna fyrir kókaíninu í blóðinu Harður árekstur þegar bíl var ekið í hlið á strætisvagni Sammála Attenborough og segir tegundir þurrkaðar út Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Þyrla Landhelgisgæslunnar aðstoðar við leitina Íslendingar sem vilja komast heim, háhyrningatorfa og blokkamyndun Ók á húsvegg Hvorki Kalli Snæ né landlæknir vilja birta bréfið Norðfjarðargöng lokuð vegna elds í bifreið Slá færri svæði í nafni sjálfbærni „Engin virðing borin fyrir því að þarna undir eru verðmæti og störf fólks“ Vesturbæjarlaug lokuð í þrjár vikur til viðbótar Bóndi spurði eftirlitsmann MAST hvort hann ætti að skjóta hann Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra hefst í dag Björguðu stjórnvana bát í Faxaflóa Steinþór sýknaður í Hæstarétti Ósk um að heita Óskir hafnað Einar horfir til hægri Harmar ákvörðun Guðmundar Enn þrefað á þingi og árásir ganga á víxl í miðausturlöndum Heyr, heyr-ið í þingsal veldur Snorra hugarangri Geðhjálp ekki á framfæri hins opinbera Tók sjúkrabíla þrjú korter að mæta á vettvang banaslyss Ný könnun Gallup: Samfylkingin bætir við sig og Framsókn þurrkast út Leituðu Sigríðar í Elliðaárdal Stakk sér til sunds með sjö háhyrningum Ný og glæsileg heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ Segir stefna í menningarslys á Birkimel Kröfur Bandaríkjaforseta, „lágkúruleg“ blokk og hátíðarhöld Sjá meira