Innlent

Björgunarsveitarmenn leituðu sofandi manns

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar var rétt að fara í loftið þegar maðurinn fannst. Mynd/ Vilhelm.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var rétt að fara í loftið þegar maðurinn fannst. Mynd/ Vilhelm.
Björgunarsveitamenn frá Akranesi voru ræstir út um hálfþrjúleytið í nótt til leitar að manni sem hafði verið saknað síðan upp úr miðnætti. Maðurinn fannst rétt fyrir klukkan níu í morgun nálægt sumarbústað sem hann hafði dvalið í. Í ljós kom að hann hafði sofnað undir berum himni án þess að samferðarfólk hans vissi af. Að sögn lögreglunnar í Borgarnesi hafði verið óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar og var hún rétt ófarin í loftið þegar að maðurinn fannst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×