Þurfa ekki að læra um kristni 29. október 2010 05:45 Börn þurfa ekki að læra kristinfræði stríði það gegn skoðunum foreldra.
Foreldrar hafa fullan rétt á því að fara fram á, án skýringa, að börn þeirra taki ekki þátt í kennslu eða athöfnum sem viðkomandi telur ekki samræmast eigin skoðunum eða trúarbrögðum. Kemur þetta fram í lögfræðiáliti um samstarf kirkju og skóla sem unnið var að beiðni mennta- og menningarmálaráðuneytisins. „Með álitinu er verið að skerpa skilin,“ segir Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra. „Það er til að mynda í lagi að fara í kirkju einu sinni á vetri en ekki í hverjum mánuði. Þetta var meðal annars gert til þess að upplýsa foreldra.“ Katrín jakobsdóttir Mennta- og menningarmálaráðherra segir álitið hafa verið gert til þess að skerpa skilin og upplýsa foreldra. fréttablaðið/valli Varðandi heimsóknir presta á skólatíma, segir í álitinu að nauðsynlegt sé að foreldrar séu látnir vita af þeim fyrirfram og gætt sé að því að ekkert ósamræmi sé í heimsóknum þeirra annars vegar og frá öðrum trúfélögum hins vegar. Heimsóknir skuli falla að skipulagi náms og vera í samræmi við það. Lögmætt er að kenna kristinfræði sem hluta af opinberu námsefni en skólar skuli þó bjóða börnunum önnur námsúrræði óski foreldrar eftir því. Á heimasíðu ráðuneytisins kemur fram að álitið sé ekki sett fram sem skoðun ráðuneytisins, heldur einungis sem fræðileg og hlutlæg úttekt á þeim álitamálum sem um ræðir. - sv
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent „Ísland á betra skilið“ Innlent Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Erlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Innlent Fleiri fréttir Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Sjá meira