Fórnarlambið í mansalsmálinu með Stokkhólmsheilkenni Erla Hlynsdóttir skrifar 15. september 2010 15:43 Ákveðnar hömlur eru á rannsókn lögreglu í mansalsmálum. Mynd: AFP „
Ég hefði persónulega viljað sjá þyngri dóma," segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, staðgengill lögreglustjórans á Suðurnesjum, um refsidóma í mansalsmálinu svokallaða þar sem fimm Litháar voru dæmdir fyrir mansal. Einn mannanna fékk fimm ára fangelsisdóm en hinir fjórir fengu fjögurra ára dóm hver. Alda var einn framsögumanna á málfundi Orators, félags laganema við Háskóla Íslands, í dag. Að loknum framsöguerindum spurði einn fundargesta hvort réttlætinu hefði verið fullnægt í málinu og sagði Alda að henni fyndist að mennirnir hefðu átt að fá hámarksrefsingu sem er átta ára fangelsi. Stúlkan komin í öruggt skjól Fórnarlambið í málinu, nítján ára stúlka frá Litháen, trylltist í flugvélinni á leið hingað til lands og varð það til þess að lögreglan skarst í leikinn. Blaðamaður Vísis var á málfundinum og spurði Öldu um afdrif stúlkunnar. „Hun er komin í öruggt skjól. Það er það eina sem ég get sagt," sagði Alda. Vildi taka næstu lest Alda segir það afar dýrmæta reynslu að hafa komið að rannsókn mansalsmálsins. Oft er erfitt að bera kennsl á fórnarlömb mansals en lögreglan hefur fengið mikla fræðslu sem á að auðvelda henni slíkt. Umrædd stúlka var afar hrædd þegar lögreglan nálgaðist hana fyrst og var mjög illa áttuð. „Hún spurði hvort hún gæti ekki bara farið með lest til Litháen," segir Alda en ljóst var að stúlkan hafði ekki hugmynd um til hvaða lands hún var komin. Nöturlegar aðstæður Ennfremur var hún lengi vel ekki fús til samstarfs eins og gjarnan er títt með fórnarlömb mansals. „Hún var að mínu mati haldin svolitlu Stokkhólmsheilkenni, sérstaklega varðandi þá sem beittu hana þessu mansali erlendis," segir Alda. Stúlkan hafði búið við afar nöturlegar aðstæður í heimalandinu og var mjög háð mönnunum sem seldu hana í kynlífsþrælkun til Íslands. „Þeir voru samt góðir í hennar huga," sagði Alda. Þegar stúlkan fór að bera meira traust til lögreglunnar varð hún samstarfsþýðari. Lögreglan hefur fjölþætt úrræði til að rannsaka mansalsmál og meðal þess sem beitt var í þessu máli voru símahleranir, húsleitir og fengnar upplýsingar um bankagögn. Torveldar rannsókn lögreglu Alda gagnrýnir þó að vegna þess að refsiramminn í mansalsmálum er aðeins átta ár er ekki hægt að krefjast þess að grunaðir verði settir í einangrun lengur en 4 vikur. Til að hægt sé að krefjast lengri dvalar í einangrum þarf refsing við brota að vera minnst tíu ár. Átta ára hámarkið í mansalsmálum setur lögreglunni því ákveðnar skorður við rannsókn mála. Varðhaldsfangar komast í síma Að mati Öldu er einnig umhugsunarvert hversu erfitt er að tálma samskipti fanga sem eru í varðhaldi. „Þó að það sé símabann og samskiptabann þá heldur það ekki. Það er eitt opið rými og eitt einangrunarrými. Þeir komast samt í síma og hafa samskipti við aðra fanga," segir hún um aðbúnaðinn í fangelsinu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira