Innlent

„Dr. Bæk“ býður ókeypis hjólaviðgerðir

Hjólandi vegfarendum gefst kostur á ókeypis yfirferð á reiðhjólum á Lækjartorgi í dag til kl. 14.00. Tjald hefur verið sett upp í tilefni af Samgönguviku og tveir vanir menn taka hjólin út, smyrja og pumpa í dekkin.

„Við gerum greiningu á ástandi reiðhjóla, stillum bremsur og gíra," segir Árni Davíðsson sem stendur vaktina í dag ásamt Örylgi Steini Sigurjónssyni undir nafninu Dr. Bæk hjólaviðgerðir.

Dr. Bæk veitir einnig tilsögn og almenna umferðarfræðslu, og verður með örnámskeið í hjólafærni.

Reiðhjól verða æ meira áberandi í miðborginni og var talning gerð 14. september á samgöngutækjum í Lækjargötu á bilinu 10.00-18.00.

Hlutfall hjólandi reyndist vera 2.2%, gangandi voru 37% og bifreiðar 61%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×