DV sýknað af kröfu Viggós 15. september 2010 10:56 Viggó krafðist 15 milljóna í bætur Mynd: Pjetur
Reynir Traustason, ritstjóri DV, Birtíngur útgáfufélag og Benedikt Bóas Hinriksson, fyrrverandi blaðamaður DV, voru sýknuð í meiðyrðamáli í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Viggó Valdemar Sigurðsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari í handbolta, höfðaði málið gegn þeim og sömuleiðis hjónunum Unni Valdemarsdóttur og Ragnari Kristni Árnasyni sem í viðtali í DV lýstu viðskiptum sínum við Viggó. Viggó var forsvarsmaður fyrirtækisins Ásvíkur ehf. sem seldi Unni sænskt einingahús sem hún ætlaði að láta reisa á lóð sinni. Hjónin vændu Viggó um svik í viðskiptum sínum. Dæmi um ummæli sem Viggó vildi fá ómerkt er: „Hann er búinn að svíkja samninga, ljúga og vera með dónaskap. Hóta okkur símleiðis, hvort sem er í símtölum eða með sms-i. Og með tölvupósti og nú síðast stal hann af okkur." Viggó taldi að í greininni væru aðdróttanir og ærumeiðandi ummæli og krafðist því 15 milljóna í bætur. Einnig taldi hann að brotið hefði verið gegn reglum um friðhelgi einkalífs hans. Dómari féllst ekki á það og standa öll ummælin sem stefnt var vegna. Gunnar Ingi Jóhannsson, lögmaður blaðamanna, ritstjóra og útgáfufélags, segir niðurstöðuna afar skynsamlega. „Rökstuðningur dómsins samræmist vel nútíma hugmyndum um tjáningafrelsi og hlutverk fjölmiðla," segir hann. Blaðamenn hafa verið fundnir sekir um meiðyrði í fjölda mála á undanförnum misserum en Gunnar Ingi segir þetta mál þó ekki öðruvísi að upplagi en fyrri málin. „Maður hefur verið með óbragð í munninum vegna þessara dóma sem hafa verið að falla," segir Gunnar Ingi og telur það mikil gleðitíðindi fyrir íslenska fjölmiðla ef þessi dómur er í takt við það sem vænta má í framtíðinni. Viggó var dæmdur til að greiða málskostnað stefndu, samtals 750 þúsund krónur. Hann hefur þrjá mánuði til að ákveða hvort hann áfrýjar málinu til Hæstaréttar.
Mest lesið Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Fleiri fréttir Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Sjá meira