Fangar fengu gervigrasvöll gefins Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. ágúst 2010 14:11 Til stendur að koma fyrir gervigrasvelli á Litla Hrauni. Mynd/ Rósa.
Fangelsið á Litla Hrauni hefur fengið rúmlega sjö milljóna króna styrk frá Evrópska knattspyrnusambandinu, UEFA, til að kaupa gervigrasvöll. Í sunnlenska fréttablaðinu Dagskránni kemur fram að völlurinn sé kominn til landsins og bíði nú eftir því að verða settur upp. Bæjarráð Árborgar hefur samþykkt að gefa eftir námugjöld af sandi úr sandnámu við Eyrarbakka vegna verkefnisins. Stefnt er að því að taka völlinn í notkun í haust. Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins, segir í samtali við Vísi að málið hafi verið unnið í samstarfi við framkvæmdastjóra KSÍ „Við skoðuðum möguleika á því að við gætum fengið sparkvelli eins og verið var að setja upp um allt land og skoðuðum hvort KSÍ gæti hjálpað okkur," segir Margrét. Framkvæmdastjóri KSÍ hafi haft samband við UEFA og þeir gefið gervigrasið. „En það er ennþá að ég held í gámi á hafnarbakkanum," segir Margrét. Ástæðan sé sú að vinnan við að koma gervigrasinu fyrir kosti sitt og enn vanti fjórar til fimm milljónir í viðbót til þess að gera allt klárt. Margrét segir að samvinna Litla Hrauns og KSÍ um þetta hafi staðið yfir í á annað ár. „Þetta er að miklu leyti til frumkvæði strákanna sem eru þarna. Þeirra sem sjá um knattspyrnu og leiki," segir Margrét. Margrét segir að mjög mikill knattspyrnuáhugi sé á Litla Hrauni. Útivist strákanna sé úti á velli og flestir taki þátt í henni. Margrét segir að ekki sé gert ráð fyrir því á fjárlögum að gera þurfi íþróttavöll á Litla Hrauni en framkvæmdastjóri KSÍ sé að leita leiða við að ljúka við gerð gervigrasvallarins.
Mest lesið Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Innlent „Það er ekkert hæft í þessu“ Innlent Segist ekki hafa gert mistök við birtingu myndbandsins Erlent Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Innlent „Sorglegra en orð fá lýst“ Innlent Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Innlent Birtu ekki baulið Erlent Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Innlent Kveðst vera í mjög krefjandi stöðu og þurfi tíma til að ná áttum Erlent „Síminn stoppar ekki“ Innlent Fleiri fréttir Nafn piltsins sem lést í slysi á Miklubraut Hjólar í borgina: Hafi engan áhuga á atkvæðum hjólreiðafólks Sigmundur í skotlínunni vegna ummæla um Svíþjóð Berglind rétt marði Þórhall „Síminn stoppar ekki“ Bifrastarmálið: „Þetta er fyrst og fremst sorglegt“ Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Vantrauststillagan stendur þrátt fyrir niðurstöðu siðanefndar Hlédís Maren fram fyrir Miðflokkinn Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Spyr hvort troða eigi gömlu fólki inn á heimili landsmanna Þrír gerðir að heiðursfélögum Sleipnis á Selfossi Viðreisn býður fram undir eigin merkjum á Ísafirði „Það er ekkert hæft í þessu“ Flutningabílar fastir á Þröskuldum Mætti með eggvopn á skemmtistað Efaðist ekki um að orsökin var bilaður aðflugsgeisli Skriður kominn á tuttugu ára gömul áform um nýjan golfvöll á Álftanesi „Ástandið hefur aldrei verið jafn slæmt“ Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi „Sorglegra en orð fá lýst“ „Mikilvægt að geyma þetta ekki inni í sér“ Banaslys á Miklubraut og brotið leikskólakerfi LHÍ ríður á vaðið: Erlendir nemendur greiða milljónir vegna fyrirhugaðrar lagabreytingar Valgarð Már er látinn Starfsmenn Bifrastar hreinsaðir af öllum sökum Yfir áttatíu milljónir í starfslokasamninga og þar af þrettán vegna starfsloka Páls Jóhann Páll fagnar því að ummæli hans séu rifjuð upp Tyrkir vilja sendiráð á Íslandi Fótbrot, kúlur á höfði og bíll á vegriði Sjá meira