Innlent

Rafmagnstruflanir víða um land

Álver Norðuráls á Grundartanga.
Álver Norðuráls á Grundartanga. MYNd/GVA

Eldur kviknaði í raftengibúnaði álversins á Grundartanga í gærkvöldi og truflanir urðu líka í álverinu í Straumsvík og á Reyðarfirði, vegna rafmagnstruflana víða um land á tíunda tímanum í gærkvöld.

Slökkviliðið á Akranesi var kallað að Grundartangaverksmiðjunni, en eldurinn var minniháttar. Talsverðan reyk lagði hinsvegar um verksmiðjuna og þurfti að reykræsta hana. Þar voru hundrað starfsmenn, en engan sakaði og komst starfssemin í eðlilegt horf undir morgun.

Á Reyðarfirði var dregið úr afköstum vegna raftruflana og sömuleiðis í Straumsvík, en ekki mun hafa orðið tjón í þeim verksmiðjum. Þá varð rafmagnslaust um tíma sumstaðar á Suðausturlandi og jafnvel víðar á landinu.

Einnig duttu umferðarljós tvisvar út á höfuðborgarsvæðinu og truflanir urðu í Hellisheiðarvirkjun. Engar upplýsingar liggja enn fyrir um orsakir þessa, en aðeins eru tæpir fjórir mánuðir síðan truflanir urðu á rafkerfinu á landsvísu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×