Innlent

Þúsundir gætu þurft að leita á náðir sveitarfélaganna

Halldór Halldórsson, Samband íslenskra sveitarfélaga.
Halldór Halldórsson, Samband íslenskra sveitarfélaga. Mynd/Anton Brink
Þúsundir manna gætu þurft að leita á náðir félagsþjónustu sveitarfélaganna, verði réttur til atvinnuleysisbóta ekki lengdur í fimm ár, segir formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. Félagsmálaráðherra hefur ekki svarað því af eða á, hvort bótaréttur verði lengdur.

Nærri 13.600 manns eru á atvinnuleysisbótum um þessar mundir, í þrjú ár að hámarki. Fleiri eru þó líklega án vinnu því eins og fram kom í fréttum RÚV í gær hefur tæplega 4300 manns verið synjað um atvinnuleysisbætur á þessu ári, af ýmsum ástæðum.

Samband íslenskra sveitarfélaga hvatti félagsmálaráðherra í sumarbyrjun til þess að lengja bótatímann í fimm ár. Halldór Halldórsson, formaður Sambandsins, segir málið hafa verið rætt á samráðsfundum með ráðuneytinu.

„Þá hefur verið vel tekið í þetta en jafnframt minnt á að það væri verið að skoða margra aðra þætti eins og t.d. að koma fólki aftur út á vinnumarkaðinn. Þó það sé bara tímabundið öðlast það réttinn að nýju. Við höfum ekki fengið formlegt svar við þessu í aðra hvora áttina," segir Halldór

Myndi þyngja rekstur sveitarfélaganna

Til skamms tíma gat fólk þegið atvinnuleysisbætur í raun í ótakmarkaðan tíma en fyrir þrettán árum var bótaréttur styttur í fimm ár og síðar í þrjú ár.

„Þegar ástandið er þannig að það vantar atvinnu þá teljum við rétt að miða við fimm ár. Þannig að þetta gæti þess vegna verið tímabundin ráðstöfun," segir Halldór.

Tvö ár eru síðan atvinnuleysi snarjókst og því styttist í að hluti atvinnulausra verði búinn að nýta sinn bótarétt. Halldór segir því að nokkur þúsund manns gætu þar með bæst í félagslegt net sveitarfélaganna.

„Það er alveg ljóst að það myndi þyngja verulega á rekstri sveitarfélaganna. Það er óþarfi að leggja það á þau ef við höfum önnur viðráðanlegri úrræði."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×