Laun fyrir nefndarstörf hækkuð um 20% hjá Vestmannaeyjabæ 13. júlí 2010 05:00 Elliði Vignisson.
Ný bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti á fyrsta fundi sínum að hækka laun fyrir setu í nefndum og ráðum bæjarins um 20 prósent. Ályktun þess efnis var samþykkt með atkvæðum allra fjögurra fulltrúa Sjálfstæðisflokksins auk tveggja fulltrúa Vestmannaeyjalistans. Einn fulltrúi Vestmannaeyjalistans, Jórunn Einarsdóttir, sat hjá. Ekki náðist í Jórunni í gærkvöldi en á vef Eyjafrétta er haft eftir henni að hún hafi ekki haft forsendur til að meta þetta á fundinum. „Við erum að færa nefndarlaun í Vestmannaeyjum nær því sem er hjá öðrum sveitarfélögum. Ennþá vantar þó talsvert mikið upp á að við náum því að fara í sömu greiðslu og önnur sveitarfélög," segir Elliði Vignisson bæjarstjóri um málið. Spurður hvaða sveitarfélög hann miði við segir Elliði: „Það eru þessi samanburðar-sveitarfélög sem eru lík okkur að stærð og gerð. Það var unnin úttekt á þessu á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og eftir að hafa farið yfir þær samanburðartölur þá var bara ekki lengur verjandi annað en að færa sig nær því sem er annars staðar." Elliði segir fjárhagsstöðu Vestmannaeyjabæjar góða. „Þessar aðgerðir sem önnur sveitarfélög standa í núna, með því að skera niður yfirvinnu og lækka laun æðstu embættismanna og pólitískra fulltrúa, áttu sér stað í Vestmannaeyjum 2004 og 2005 þegar við vorum illa sett. Það varð til þess að laun pólitískra fulltrúa voru orðin umtalsvert lægri hér en annars staðar," segir Elliði.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Sjá meira